Lög Félags sjúkraþjálfara um sálvefræna heilsu


1.grein – Heiti félagsins


Heiti félagsins er Félag sjúkraþjálfara um sálvefræna heilsu, er skammstafast, FSSH. Lögheimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2.grein – Markmið félagsins


Markmið félagsins eru:

1. Fagleg:

a) Stuðla að fræðslu og forvarnarstarfi um sálvefræna heilsu.

b) Stuðla að framhaldsmenntun, símenntun og rannsóknum í sálvefrænum aðferðum innan sjúkraþjálfunar.

c) 2. Félagsleg: Efla samskipti við hliðstæð félög erlendis Efla samskipti milli sjúkraþjálfara um sálvefrænar aðferðir í sjúkraþjálfun.


3.grein – Félagar

Löggiltir sjúkraþjálfarar innan FS geta orðið félagar. Sækja þarf skriflega um inngöngu í félagið til stjórnar þess. Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg.


4.grein – Félagsgjöld


Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi. Gjalddagi skal vera þann 15.maí ár hvert. Fullt árgjald skal greiða þótt um hluta úr ári sé að ræða.


5.grein – Aðalfundur Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. október ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með tveggja vikna fyrirvara. Dagsskrá aðalfundar skal vera:

• Skýrsla stjórnar.

• Reikningar lagðir fram til samþykktar.

• Ákvörðun félagsgjalda.

• Lagabreytingar.

• Stjórnarkjör.

• Kosning skoðunarmanns reikninga.

• Önnur mál.


6.grein – Atkvæðisréttur


Atkvæðisrétt hafa skuldlausir félagar. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum.


7.grein – Stjórn félagsins


Stjórn félagsins skal kosin til eins árs og vera skipuð fimm félögum, formanni gjaldkera, ritara og tveimur meðstjórnendum. Formaður skal kosinn sérstaklega. Aðrir stjórnarmenn skulu skipta með sér verkum. Einnig skal kosinn einn varamaður til eins árs.


8.grein – Hlutverk stjórnar


Hlutverk stjórnar er að vinna að framgangi markmiða félagsins, og fylgja eftir lögum þess og samþykktum. Stjórn boðar aðalfund og hún getur einnig boðað til annarra funda ef með þarf. Starfsemi félagsins er að öðru leyti í höndum félagsmanna.


9.grein – Lagabreytingar


Lögum þessum verður aðeins breytt með samþykki að minnsta kosti tveggja þriðju hluta atkvæðisbærra fundarmanna. Tillögur um lagabreytingar skulu vera skriflegar, og skulu hafa borist stjórn einni viku fyrir aðalfund.


10.grein – Gildistaka Lög þessi öðlast gildi þegar þau hafa verið samþykkt á aðalfundi félagsins.


Reykjavík, 25..september 2019