Lektor í sjúkraþjálfun - Háskóli Íslands, Heilbrigðisvísindasvið - Reykjavík

Laust er til umsóknar 100% starf lektors við Námsbraut í sjúkraþjálfun innan Læknadeildar á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands

22.3.2016

Laust er til umsóknar 100% starf lektors við Námsbraut í sjúkraþjálfun innan Læknadeildar á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands

Laust er til umsóknar 100% starf lektors við Námsbraut í sjúkraþjálfun innan Læknadeildar á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, á sviði taugasjúkdóma innan sjúkraþjálfunar.
Umsækjendur skulu hafa doktorspróf eða próf sem jafnað verður til doktorsprófs, eða jafngild hæfni að mati dómnefndar.

Aðrar menntunar- og hæfniskröfur eru: 
• Umsækjendur skulu hafa klíníska reynslu innan sjúkraþjálfunar 
• Umsækjendur skulu hafa sérþekkingu á sviði taugakerfisins og sjúkdóma þess 
• Umsækjendur skulu vera virkir í rannsóknum á ofangreindu sviði 
• Umsækjendur skulu hafa reynslu af kennslu og leiðbeiningu á háskólastigi 
• Umsækjendur skulu hafa reynslu af stjórnun 
• Hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg

Helstu verkefni: 
• Hafa umsjón með og kenna sjúkdómafræði, sjúkraþjálfunarfræði og um endurhæfingu sjúklinga með frávik taugakerfinu 
• Byggja upp og leiða rannsóknir við Námsbrautina á sviði taugakerfisins og sjúkdóma þess 
• Leiðbeining meistaraverkefna á sviði taugasjúkdóma og sjúkraþjálfunar 
• Taka þátt í stjórnun námsbrautarinnar

Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009, sjá á vefnum: http://www.hi.is/is/skolinn/reglur_fyrir_haskola_islands. Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009. Vakin er athygli á ákvæði í verklagsreglum HÍ um framgang akademískra starfsmanna strax í kjölfar nýráðningar. Þar er kveðið á um að forseti fræðasviðs geti þegar sérstaklega stendur á óskað eftir að akademískur starfsmaður fái framgang í annað starfsheiti en auglýst var, strax í kjölfar nýráðningar.

Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið bmz@hi.is merkt HI16030091. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókninni vottorð um námsferil og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og rannsóknaráætlun ef til ráðningar kemur. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Ef ekki er unnt að skila fylgigögnum með umsókn á rafrænu formi skal skila þeim í tvíriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur er til og með 23. maí, 2016. Stefnt er að því að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 1. nóvember, 2016.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Sveinsson, prófessor og formaður Námsbrautar í sjúkraþjálfun með pósti á netfangið thorasve@hi.is eða í s. 525 4840.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. (sjá: http://www.jafnretti.hi.is/).

Háskóli Íslands er stærsta mennta-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands og er á meðal 300 bestu háskóla heimsins samkvæmt lista Times Higher Education. Hann er ríkisháskóli sem staðsettur er í miðbæ Reykjavíkur. Fjölbreyttur, nútímavæddur og hratt vaxandi, býður Háskóli Íslands upp tækifæri á nær 300 brautum til náms og rannsókna innan flestra sviða vísinda og menntunar, þ.e. innan félagsvísinda, heilbrigðisvísinda, hugvísinda, menntavísinda og verk- og raunvísinda.

Námsbraut í sjúkraþjálfun tilheyrir Læknadeild sem er ein af sex deildum Heilbrigðisvísindasviðs við Háskóla Íslands. Frá þeim tíma er Námsbrautin var stofnuð 1976, bauð hún upp á fjögurra ára BS nám til starfsréttinda í sjúkraþjálfun. Þessu var breytt frá og með haustinu 2014 en síðan þá hefur verið boðið upp á fimm ára nám til starfsréttinda í sjúkraþjálfun; þriggja ára BS nám í sjúkraþjálfunarfræði og tveggja ára MS nám í sjúkraþjálfun. Námsbrautin býður því núna upp bæði BS og MS gráður tengdar sjúkraþjálfun þar sem 35 nemendur eru teknir inn á fyrsta ár í BS náminu. Það er stefna Námsbrautar í sjúkraþjálfun að mennta sjúkraþjálfara sem eru gagnrýnir í hugsun, byggja starf sitt á gagnreyndri þekkingu, skila árangri, fylgja siðareglum og eru virkir í símenntun. Við útskrift eiga nemendur að hafa þróað með sér fagmennsku og samfélagslega ábyrgð. Við Námsbrautina starfa núna sex akademískir starfsmenn sem allir stunda metnaðarfullar rannsóknir á ýmsum sviðum innan sjúkraþjálfunar og tengdra sviða, í samvinnu við erlenda og innlenda aðila. Ætlast verður til að sá sem hlýtur umrætt starf breikki og styrki enn frekar rannsóknarsvið Námsbrautarinnar.