Verktakar og sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar


Hér má finna samninga og samkomulög sem gilda fyrir sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara ásamt hagnýtum upplýsingum um rekstur og starfsemi þeirra. Efnið veitir yfirsýn yfir réttindi, skyldur og faglega umgjörð þeirra sem starfa sjálfstætt innan sjúkraþjálfunar á Íslandi.

Samningur Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands

Starfsheildir: Leiðbeiningar og upplýsingar

Með samningnum fylgja eftirfarandi fylgiskjöl:


  • Fylgiskjal 1: Lágmarksútbúnaður á stofum sjúkraþjálfara
  • Fylgiskjal 2: Skýringar á meðferðarliðum
  • Fylgiskjal 3: Fyrirkomulag á samskiptum sjúkraþjálfara, lækna og Sjúkratrygginga Íslands
  • Fylgiskjal 4: Vinnureglur um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands
  • Fylgiskjal 5: Tilkynning til SÍ um sjálfstæðan rekstur sjúkraþjálfara
  • Fylgiskjal 6: Faglegar lágmarkskröfur á starfsstofum sjúkraþjálfara
  • Fylgiskjal 7: Faglegar lágmarkskröfur heimasjúkraþjálfara
  • Leiðbeiningar varðandi leyfi til sjálfstæðs reksturs í heilbrigðisþjónustu

    Hvað þarf að hafa í huga þegar sótt er um leyfi til sjálfstæðs reksturs í heilbrigðisþjónustu, þ.á.m. að starfa sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari?


    Í fyrsta lagi er mikilvægt að hafa í huga að það er mikil ábyrgð sem felst í því að starfa sjálfstætt innan íslenska heilbrigðiskerfisins. Sjúklingar sem leita til sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara eiga rétt á því að tryggt sé að þeir fái fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu, að starfsstaðurinn uppfylli öll skilyrði Landlæknis um rekstur í heilbrigðisþjónustu og að tryggt sé að farið sé með persónuupplýsingar og sjúkragögn samkvæmt lögum og reglum.


    Í öðru lagi er skylt að hafa kynnt sér vel öll þau lög og reglur sem sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönnum ber að fara eftir. Því brýnum við fyrir sjúkraþjálfurum að afrita ekki bara einhverja umsókn sem þeir hugsanlega hafa séð, heldur að leggjast vel yfir öll lög og reglur, lesa þær og tileinka sér, það er ekki að ástæðulausu að þessar kröfur eru settar fram. Við viljum, sem neytendur heilbrigðisþjónustu, að starfsemi sem við leitum til uppfylli öll skilyrði Landlæknis, það er jafnmikilvægt að þeir sem leita til okkar geti verið vissir um að okkar þjónusta uppfylli þau líka.

    Þetta er ástæða þess að Landlæknisembættið fer fram á öll þessi gögn og krefst lýsingar á þeirri starfsstöð og þeirri starfssemi sem sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn hyggjast standa fyrir.

    Breyting á vinnustað eða endurkoma á vinnustað eftir langt hlé kallar einnig á það að farið sé yfir starfsemina. Langt starfshlé, önnur starfsstöð og hugsanlega annar kúnnahópur kallar á endurmat á starfsleyfi.


    Skráning sjúkraþjálfunar

    Mikilvægi góðrar skráningar er aldrei ofmetið og það borgar sig að temja sér góð vinnubrögð varðandi slíkt strax í upphafi. Meðferð skjólstæðings verður aldrei markviss nema að um hana sé haldið gott bókhald. Sér í lagi er gott að hafa góðar og ítarlegar upplýsingar við höndina ef skjólstæðingar leita aftur til sjúkraþjálfarans eftir langt hlé eða koma endurtekið með hléum

    Af og til berast sjúkraþjálfurum beiðnir um að skrifa greinagerðir til lögfræðinga skjólstæðinga, sem höfðað hafa skaðabótamál vegna slysa. Slíkar beiðnir koma oft löngu eftir að skjólstæðingur hefur lokið meðferð og þá ríður á að um skoðun, meðferðina og ástand við útskrift séu til góðar upplýsingar. Rétt er að benda á að lögum samkvæmt má kalla heilbrigðisstarfsmann sem skrifað hefur slíka greinargerð fyrir dóm til að vitna um réttmæti greinargerðarinnar. Slíkt er afar sjaldgæft í tilvikum sjúkraþjálfara, en þó ekki óþekkt og ber að hafa í huga.

    Í lokin skal það áréttað að bæði Landlæknisembættið og Sjúkratrygginar Íslands gera ýmsar kröfur til sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks, en ekki rugla saman þeim kröfum sem hvor aðilinn setur.


    Að verða löggiltur sjúkraþjálfari og hefja sjálfstæðan rekstur

    Umsókn um starfsleyfi

    Sótt er um starfsleyfi hjá Landlækni (www.landlaeknir.is)


    Umsókn þarf að fylgja staðfest afrit af prófskírteini þar sem kemur fram nafn, kennitala og heiti á prófgráðu. 


    Ferlið tekur 3-6 vikur. Mikilvægt er að sækja um strax eeftir útskrift og vanda umsókn. 


    Tilkynning um rekstur heilbrigðisþjónustu

    Tilkynna þarf um rekstur heilbrigðisþjónustu til Landlæknis (www.landlaeknir.is)

    Tilkynningu þarf að fylgja löggilt starfsleyfi.  

    Ferlið tekur 3-8 vikur. Mikilvægt er að sækja um strax og mögulegt er og vanda umsóknina í hvívetna. Heppilegt er að vera búinn að vinna sér í haginn með því að vera tilbúinn með öll gögn sem þurfa að liggja fyrir, þ.a. umsóknin sé í raun tilbúin þegar að útskriftardegi kemur. Þá er hægt að senda hana inn strax og löggildingin liggur fyrir.

     

    Lögbundnar tryggingar:

    • Sjúklingatrygging
    • Frjáls ábyrgðartrygging

    Aðrar tryggingar eru valkvæðar en eindregið er ráðlagt að vera vel tryggður.

    Sumir geta keypt tryggingar í gegnum starfsstofu sína, aðrir fá tilboð frá sínu tryggingafélagi. 


    Tilkynning til Sjúkratrygginga Íslands


    Tilkynna þarf um sjálfstæðan rekstur til Sjúkratrygginga Íslands (www.sjukra.is)

     

    Tilkynningunni þarf að fylgja:

    • Löggilt starfsleyfi
    • Staðfesting frá Landlækni um að sjúkraþjálfari hefji sjálfstæðan rekstur
    • Staðfesting á sjúklingatryggingu og frjálsri ábyrgðartryggingu
    • Yfirlýsing vegna tenginga við netkerfi sjúkratrygginga Íslands

    Sjálfstætt starfandi sem eigin atvinnurekandi

    Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari er eigin atvinnurekandi. Sem slíkum ber honum að  tilkynna upphaf reksturs til skattayfirvalda og standa mánaðarlega skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingagjaldi.  Einnig ber honum að greiða bæði hlut launagreiðanda og launþega til lífeyrissjóðs og mikilvægt er því að kynna sér vel þá lífeyrissjóði sem í boði eru.


    Umsókn um leyfi til reksturs heilbrigðisþjónustu

    Umsóknareyðublað Landlæknis 

    Útfylling umsóknareyðublaðs Landlæknis

    Liður 4. Skráning:  Gagni – skráningakerfið – t.a. setja í umsókn

    Dæmi um lýsingu á Gagna, sem nota má við útfyllingu á umsókn um starfsleyfi sjúkraþjálfara:

    Rafræn skráning (nánari lýsing)

    A) Heiti rafræns sjúkraskrárkerfis: 

    Gagni sjúkraskrárkerfi sjúkraþjálfara

    B) Hver hýsir kerfið? (nánari lýsing samkvæmt fyrirmælum landlæknis um öryggi og gæði sjúkraskráa)

    Sensa hýsir kerfið og öllum þáttum í fyrirmælum landlæknis um öryggi hýsinga á sjúkraskárupplýsingum er fylgt. Afritunartaka er daglega

    C) Lýsið aðgangi notenda að kerfinu (nánari lýsing samkvæmt fyrirmælum landlæknis um öryggi og gæði sjúkraskráa)

    Gagni er vefkerfi þar sem ég hef minn aðgang með notendanafninog lykilorði. IP tala fyrirtækisins er skráð hjá hýsingaraðila, þannig að ef ég ætla að fara inn í kerfið utan stofunnar þá þarf ég að nota rafræn skilríki til þess. Aðgangur minn takmarkast við sjúkraskráupplýsingar sem skráðar eru innan stofunnar en rekjanleiki er til staðar, á því hver skoðar sjúkraskrá hvers og eins.

    D) Hvernig verður lögbundnum skilum á starfsemisupplýsingum til Embættis landlæknis háttað? (sjá lög nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu og lágmarksskráningu fyrirmæla landlæknis)

    Með því að fara í einu og öllu eftir því sem lögin segja.

    E) Samtengingar:

    1) Er sjúkraskrárkerfi samnýtt með öðrum rekstraraðilum? (nánari lýsing)

    Nei

    2) Hvernig er fyrirhugað að að samtengja sjúkraskrárkerfi? (nánari lýsing)

    Ekki hefur fengist leyfi til að samtengja sjúkraskrár með öðrum rekstaraðilum.

    Ekki er því fyrirhugað að samtengja sjúkraskrár að svo stöddu


    Liðir 7. Húsnæði og 8. Búnaður og tækjakostur: Lýsing á húsnæði og tækjabúnaði ætti að vera til á sérhverri starfsstöð sjúkraþjálfara. Gæta þarf þess að upplýsingarnar séu uppfærðar til nútíma.

    Liður 9. Gæði þjónustu: Gæðavísar í sjúkraþjálfun

    Landlæknisembættið er eftirlitsaðili með heilbrigðisþjónustu og skal tryggja að sú þjónusta sem veitt er hér á landi sé fyrsta flokks. Í þeim tilgangi er gengið eftir því að heilbrigðisstarfsmenn leggi til grundvallar gæðavísa í störfum sínum, til að hægt sé að leggja mat á árangur þjónustunnar.

    Gæðavísar í sjúkraþjálfun geta verið t.d:

    Próf og mælitæki sjúkraþjálfunar, sjá mælitækjabanka FS á innri vef.

    Evrópskir staðlar í sjúkraþjálfun – ER-WCPT (sjá neðar á heimasíðunni)

    Aðrir staðlar/próf sem viðurkenndir eru í heilbrigðisþjónustu


    Að starfa sjálfstætt

    Þegar verið er að ræða kaup og kjör þarf að reikna inn í allan vinnutíma verktaka, ekki bara þann tíma sem sjúkraþjálfari er með skjólstæðinga í meðferð. Einnig þarf að að hafa í huga að verktakar njóta hvorki veikindaréttar né orlofsréttar og eru tekjulausir á meðan á endurmenntun stendur.

    Sjá reiknivél BHM vegna sjálfstætt starfandi einstaklinga

    Því eru góðar tryggingar mikilvægar, bæði slysa– og sjúkdómatryggingar, auk skyldutrygginga.

    Ráðgjöf vegna trygginga er ekki á ábyrgð félagsins, en við bendum á að sjúkrasjóður BHM hefur nú stytt biðtíma eftir dagpeningum í veikindum sjálfstætt starfandi félagsmanna úr 3 mánuðum niður í tvo mánuði.

    Sí- og endurmenntun sjúkraþjálfara er afar mikilvæg. Við hvetjum sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara eindregið til að greiða til starfsmenntunarsjóðs BHM og starfsþróunarseturs háskólamanna og nýta þau réttindi sem það gefur til stöðugrar endurmenntunar. Fagið er í hraðri þróun og mikilvægt er að fylgjast vel með og tileinka sér nýjustu þekkingi hvers tíma.

    • Styrkir og sjóðir BHM
    • Sjálfstætt starfandi sérfræðingar
    • Félagsgjöld í Félag sjúkraþjálfara og sjóði BHM 
    • Fæðingarorlof sem verktaki

    • Umsókn um greiðslur í fæðingarorlofi frá Vinnumálastofnun 

    • Félagsfólk er hvatt til að merkja við að tekin séu stéttarfélagsgjöld af fæðingarorlofsgreiðslum, þá viðhaldast öll réttindi hjá sjóðum BHM óskert.

    • Tilkynning til RSK um að viðkomandi sért að hættur að vinna tímabundið og að engin laun verði greidd á tímabilinu.

    • Ekki er heimilt að stunda launaða vinnu (ekki heldur í verktöku) á meðan launuðu fæðingarorlofi stendur.

     

    Uppfært 12.6.2017



Kjarasamningar launþega


Kjarasamningar launþega eru aðgengilegir til skoðunar hér fyrir neðan í réttri tímaröð eftir því sem mögulegt er.