Heilsuleiðir ehf. á Egilsstöðum

14.08.2023

Sjúkraþjálfari óskast til starfa hjá Heilsuleiðum ehf. á Egilsstöðum sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Sjúkraþjálfari óskast til starfa hjá Heilsuleiðum ehf. á Egilsstöðum sem fyrst eða eftir samkomulagi. 

Heilsuleiðir ehf. er vaxandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem leitar að aðila sem vill taka þátt í spennandi uppbyggingu fyrirtækisins til framtíðar.
Starfið felst í þjálfun og meðferð einstaklinga ásamt hópþjálfun í tækjasal.

Heilsuleiðir er með þrjú meðferðarherbergi, góðan æfingasal og sér sal fyrir börn ásamt aðstöðu fyrir nýjar leiðir í þjálfun og heilbrigðisþjónustu. Mjög góð aðstaða, föst sanngjörn mánaðarleiga.

Ef þig langar til að vinna út á landi er Egilsstaðir kjörinn staður. Þar er fallegt umhverfi með fjölbreytta möguleika til útivistar og fjölbreytt menningarlíf. Stutt er í alla þjónustu og aðeins klukkustundar flug til Reykjavíkur.
Mögulegt er að útvega húsnæði ef þessi er óskað.

Umsókn sendist á heilsuleidir@heilsuleidir.is nánari upplýsingar veitir Lonneke van Gastel í sima 699-1917, 571-1917.
www.heilsuleidir.is

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.