Sjúkraþjálfari, sérfræðingur 1, á Reykjalundi

27.08.2024

Á Reykalundi starfa 8 þverfagleg meðferðarteymi á tveimur meðferðarsviðum og er starfið því fjölbreytt. Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. 

Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk sjúkraþjálfara, iðjuþjálfar, félagsráðgjafar, talmeinafræðingar, sálfræðingar, næringarfræðingar, íþróttafræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar.

Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst eða september nk.

Hæfniskröfur:

· Íslenskt starfsleyfi gefið út af Embætti landlæknis.

· Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

· Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.

· Áhugi, metnaður og sjálfstæði í starfi.

Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags sjúkraþjálfara og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu) auk stofnanasamnings FS og Reykjalundar.

Upplýsingar um starfið veitir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðusjúkraþjálfari asdiskri@reykjalundur.is  og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri gudbjorg@reykjalundur.is

Umsóknarfrestur er til 10. september 2024

Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is