Fascia Integration Therapy, Level I

Leiðbeinandi: Ernst van der Wijk PT

Lokað fyrir skráningu

  • Dagsetning:
    8. október 2021 - 10. október 2021
  • Staðsetning: Húsnæði Ísí, Engjavegi 6
  • Tími:
    09:00 - 18:00
  • Bókunartímabil:
    1. júlí 2021 - 30. september 2021
  • Almennt verð:
    110.000 kr.
  • Fagdeild verð:
    95.000 kr.

Fascia Integration Therapy námskeið á Íslandi

Fascia intergration therapy (F.I.T.) Í þessari meðferð er fókusinn á bandvefskerfi líkamans. Í henni felst nákvæm skoðun á hreyfigetu og áferð vefs, sértæk meðferðartækni og æfingar til að endurheimta jafnvægi í vöðvabandvef.

Skráning hefst 1. júlí

ATH 20. ágúst hækkar verð fyrir fagdeild í 95000 krónur

 

„Look globally, treat locally, move totally“

 Ernst van der Wijk er hollenskur sjúkraþjálfari sem starfað hefur í meira en 25 ár við Erasmus Háskólasjúkrahúsið í Rotterdam. Aðaláhugasvið hans er að þróa árangursríkari leiðir fyrir sjúkraþjálfara til að meðhöndla og hjálpa fólki sem glímir við langvinna verki. Ernst hefur ásamt félaga sínum Alexander Kudus þróað meðferðarprógram sem þeir kalla „Fascia Integration Therapy“ F.I.T. Í þessari meðferð er fókusinn á bandvefskerfi líkamans. Í henni felst nákvæm skoðun á hreyfigetu og áferð vefs, sértæk meðferðartækni og æfingar til að endurheimta jafnvægi í vöðvabandvef. Ernst hefur gífurlega mikla reynslu og brennandi áhuga á að afla sér nýrrar þekkingar hjá fremstu vísindamönnum í heimi, nýta þá þekkingu og innleiða í meðferðina og miðla síðan áfram til sjúkraþjálfara. Þeir félagar hafa kennt yfir 600 sjúkraþjálfurum í Hollandi en einnig á Ítalíu, í Rúmeníu og nú síðast á Íslandi.

Grunnnámskeið F.I.T. eru þrjú. Level I, II og III. Í level I er farið í fræðin á bak við meðferðina og líkamsmat og kenndar eru meðferðaraðferðir fyrir efri hluta líkamans. Í level II er farið dýpra í fræðin og haldið áfram með meðferðaraðferðir fyrir neðri hluta líkamans. Í level III eru tekin fyrir sértæk vandamál og fleiri aðferðir kenndar. Námskeiðin eru bæði á fyrirlestraformi og verkleg kennsla

Lokað fyrir skráningu