Persónuverndaryfirlýsing Félags sjúkraþjálfara FS
Skráð 29.11.2019
Með
persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Félag
sjúkraþjálfara,
kt. 420113-0480, Borgartúni 6, 105 Reykjavík stendur að
vinnslu, s.s. söfnun, skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra
upplýsinga um einstaklinga (hér eftir einnig „þú“). Yfirlýsingin fjallar einkum
um vinnslu persónuupplýsinga um félagsmenn FS og einstaklinga sem heimsækja
vefsíðu félagsins, www.physio.is, eða skrá sig á
póstlista bandalagsins. hvort sem
upplýsingarnar eru geymdar rafrænt, á pappír eða með öðrum hætti. Þar með talin er vinnsla
gagna í tengslum við eftirfarandi sjóði BHM; Orlofssjóð BHM (OBHM), Styrktarsjóð BHM (STBHM),
Sjúkrasjóð BHM (SKBHM), Starfsþróunarsetur Háskólamanna (STH),
Starfsmenntunarsjóð (STRÍB).
Félag sjúkraþjálfara vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf á Íslandi á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Persónuvernd er Félagi sjúkraþjálfara mikilvæg
Öflug persónuvernd er FS kappsmál
og leggjum við mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð
persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi regluverk á hverjum tíma,
sem og í samræmi við bestu venjur.
Hvaða persónuupplýsingum safnar Félag sjúkraþjálfara um þig og hver er
tilgangurinn með söfnuninni?
FS leggur áherslu á að vinna
einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang
sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. FS vinnur persónuupplýsingar ekki
frekar í óskyldum tilgangi nema einstaklingi sé tilkynnt um slíkt og þá heimild
sem vinnslan byggist á.
Félag sjúkraþjálfara safnar, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingum:
- auðkennis- og samskiptaupplýsingum, s.s. nafni og kennitölu, heimilisfangi, þjóðerni, tölvupósti, símanúmeri, bankaupplýsingum, starfsleyfi og eftir atvikum samskiptasögu
- fjármálaupplýsingum, s.s. greiðsluupplýsingum,eftir atvikum launaseðlum
- tæknilegum upplýsingum, s.s. IP tölu
- stafrænum fótsporum, s.s. nethegðun
- upplýsingum í tengslum við val á markaðssetningu
- samtölum í gegnum samfélagsmiðla og netspjall á vefsíðu Félags sjúkraþjálfara
- upplýsingar í gegnum Þjóðskrá
Félag sjúkraþjálfara safnar einnig, eins og við á, eftirfarandi persónuupplýsingum sem gætu flokkast sem viðkvæmar persónuupplýsingar:
- Aðild að stéttarfélagi og staða á vinnumarkaði.
Það er stefna Félags sjúkraþjálfara að safna ekki persónuupplýsingum um börn undir 13 ára aldri, nema að því leyti sem slíkt er nauðsynlegt í tengslum við [sjúkradagpeninga í tengslum við veikindi barna, fæðingastyrki, ferðakostnaðarstyrki eða ættleiðingastyrki.
Félag sjúkraþjálfara vinnur persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að:
- reikna út félagsgjöld, iðgjöld í sjóði og meta réttindi félagsmanna
- vera í samskiptum við og gæta hagsmuna félagsmanna, m.a. í gegnum póstlista sem tengjast starfsemi félagsins og sjóða þess
- senda út tilkynningar, fréttabréf og upplýsingar til félagsmanna, t.d. um afgreiðslu umsókna og breytingar á reglum sjóða eða til þess að senda út þjónustu- eða viðhorfskannanir
- framkvæma greiningar á launatölfræði
- bregðast við fyrirspurnum, kvörtunum og hrósi frá einstaklingum
- uppfylla lagaskyldu sem hvílir á FS, svo sem í tengslum við bókhald og skil til skattayfirvalda
- gera félagsmönnum aðildarfélaga kleift að kjósa í trúnaðarstöður innan FS
Þegar þú notar heimasíðuna okkar www.physio.is söfnum við upplýsingum um notkun þína, þ.e. IP tölu, tegund eða útgáfu vafra sem þú notar, tímasetningu og tímalengd heimsóknar og hvaða undirsíður þú heimsækir innan heimasíðu FS. Heimasíða Félags sjukraþjálfara safnar ekki sjálfkrafa neinum persónurekjanlegum gögnum um notkun og notendur. Umferð um vefsvæðið er mæld [með Google Analytics / Siteimprove / Facebook Pixel], en þær upplýsingar um notkun sem við höfum aðgang að eru ekki persónurekjanlegar.
Lagalegur grundvöllur fyrir vinnslu
Félag sjúkraþjálfara safnar og
vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:
- Til að uppfylla samningsskyldu. Þessi heimild á einkum við vinnslu í tengslum við kjarasamninga og samninga aðildarfélaga (stéttarfélaga) BHM við FS. setja rétt félag
- Til að uppfylla lagaskyldu. Þessi heimild á einkum við í tengslum við gögn sem falla undir bókhaldslög.
- Til að vernda lögmæta hagsmuni félagsins. Þessi heimild á einkum við í tengslum við í eignavörsluskyni, ásamt innheimtu vanskilakrafna.
Félag sjúkraþjálfara geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.
Frá hverjum safnar Félag sjúkraþjálfara þínum persónuupplýsingum?
Við söfnum persónuupplýsingum frá
þér, og í vissum tilvikum frá utanaðkomandi aðilum á borð við atvinnurekendur
og opinber yfirvöld.
Hvenær miðlar Félag sjúkraþjálfara persónuupplýsingum þínum til þriðju
aðila og af hverju?
FS selur ekki undir neinum
kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. FS miðlar einungis persónuupplýsingum
til þriðju aðila þar sem sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða
þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka sem ráðinn er af hálfu FS til þess að
vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um:
- að framkvæma greiningar og rafrænar kosningar, senda markauglýsingar
- upplýsingatækni
Félag sjúkraþjálfara og sjóðir þurfa að gera tilteknar persónugreinanlegar upplýsingar aðgengilegar stéttarfélagi þínu í því skyni að fá upplýsingar til að geta afgreitt umsókn eða önnur mál sem þú hefur leitað til FS og sjóða með.
Teljist aðili sem FS miðlar persónuupplýsingum til vera vinnsluaðili gerir félagið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Vinnslusamningar kveða meðal annars á um skyldu vinnsluaðila til að halda persónuupplýsingum öruggum og að nota þær ekki í öðrum tilgangi. FS deilir einnig persónuupplýsingum með þriðju aðilum þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda lögmæta hagsmuni FS, eins og við innheimtu á vanskilakröfu.
Persónuverndaryfirlýsing FS nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Google og Microsoft.
Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um öryggisbrot
Öryggi í vinnslu
persónuupplýsinga er Félagi sjúkraþjálfara mikilvægt og höfum við gripið til
viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd
persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi. Komi upp öryggisbrot
er varðar þínar persónuupplýsingar, og teljist slíkt brot hafa í för með sér
mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án
ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir
til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu
birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi. Hér viljum við þó
vekja athygli á því að þær persónuupplýsingar sem þú deilir með okkur á
samfélagsmiðlum, t.d. Facebook síðu FS teljast opinberar upplýsingar og ekki á
forræði félagsins þar sem FS hefur enga stjórn á slíkum upplýsingum né bera
ábyrgð á notkun eða birtingu þeirra. Standi vilji þinn ekki til þess að deila
þeim upplýsingum með öðrum notendum eða veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar
skaltu ekki deila upplýsingum á samfélagsmiðlum okkar. Við hvetjum þig einnig
til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þessara aðila, Facebook, Google og
Microsoft. Athugaðu að þegar þú ferð inn á Facebook síðu okkar, er mögulegt að
Facebook komi fyrir vafrakökum í tæki þínu í greiningarskyni.
Réttindi þín
Með fyrirvara um þau skilyrði sem
nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á
að:
- fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar FS hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig,
- fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, eða óska eftir að þær séu sendar til þriðja aðila,
- persónuupplýsingar þínar séu uppfærðar og leiðréttar ef tilefni er til,
- FS eyði persónuupplýsingum þínum ef ekki er málefnaleg eða lagaleg skylda til að varðveita þær,
- koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar,
- upplýsingar um það hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, á hvaða rökum slík ákvarðanataka er byggð og endurskoðun á sjálfvirkri ákvarðanatöku,
- afturkalla samþykki þitt um að FS megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.
Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn á personuverndarfulltrui@bhm.is. Við munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við beiðnum innan mánaðar frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.
Þú hefur einnig rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra, www.personuvernd.is.
Frekari upplýsingar
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar
um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa
samband við persónuverndarfulltrúa BHM, Ásdísi Auðunsdóttur í gegnum netfangið personuverndarfulltrui@bhm.is.
Yfirferð og endurskoðun persónuverndaryfirlýsingar Félags sjúkraþjálfara
Persónuverndaryfirlýsing Félags
sjúkraþjálfara er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til. Síðast
var stefnan uppfærð þann 29.11.2019.
Félag sjúkraþjálfara <> sjúkraþjálfun í 80 ár <> 1940 – 2020