Hálsinn í stóra samhenginu - Reykjavík

Leiðbeinandi: Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir

Lokað fyrir skráningu

  • Dagsetning:
    14. september 2024 - 15. september 2024
  • Staðsetning: Táp sjúkraþjálfun
  • Tími:
    08:30 - 16:00
  • Bókunartímabil:
    21. júní 2024 - 28. júlí 2024
  • Almennt verð:
    127.000 kr.
  • Fagdeild verð:
    102.000 kr.

ATH: vegna tæknilegra örðugleika frestast opnun skráningar fyrir félaga í fagdeild á þetta námskeið fram á föstudaginn 21. júní nk!

___________________________________________________________________________

Snemmskráning fagdeildar FS hefst föstudaginn 21.6.24 kl. 12:00. Aðrir en virkir félagar í fagdeild FS geta skráð sig frá og með 28.6.2024. 

Verð fyrir fagdeild hækkar 19.7.2024 og verður 102.000 kr. 

___________________________________________________________________________

Hálsinn í stóra samhenginu - námskeið

Kennari: Hólmfríður Berglind Þorsteinsdóttir, sjúkraþjálfari, Sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis MT

 MENNTUN: B.Sc. gráða frá HÍ árið 1999. Sérfræðigráða í greiningu og meðferð stoðkerfis árið 2009 Masters gráða (Musculosceletal physiotherapy) frá UQ (The University of Queenslandí) Ástralíu árið 2006. Auk þessa hefur Hólmfríður sótt fjölmörg og fjölbreytt námskeið sem tengjast sjúkraþjálfun bæði beint og óbeint. Eitt af aðal áhugasviðum Hólmfríðar frá upphafi hefur verið hálsinn og gerði hún lokaverkefnið sitt um hálsinn í UQ.

STARFSFERILL: MS heimilið sumarið 1999. Eftir það flutti Hólmfríður til Kaupmannahafnar og vann þar á elliheimili og heimili fyrir fatlaða. Frá 2003-2005 starfaði Hólmfríður sem sjúkraþjálfari á Íslandi. Fyrst í Hreyfigreiningu, svo í Sjúkraþjálfuninni í Mjódd. Eftir meistarnámið í Ástralíu árið 2006 hóf hún aftur störf í Hreyfigreiningu, svo í Atlas endurhæfing, Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu, Heilsuborg (fagstjóri) og starfar nú í Verkjalausnum. Auk þess að starfa á sjúkraþjálfunar stofum hefur Hólmfríður samhliða starfað við eftirfarandi: Meðgöngusund, sem sjúkraþjálfari á Hrafnistu í Reykjavík, kennslu við sjúkraþjálfunarskor HÍ og haldið fyrirlestur fyrir Endurmenntun HÍ, kennslu við Keili (fyrir nema í einkaþjálfun) og á ýmsum námskeiðum, bæði fyrir sjúkraþjálfara og aðra. Hólmfríður hélt sitt fyrsta námskeið í samstarfi við Fræðslunefnd FS árið 2012 og hefur haldið nokkur námskeið síðan, síðast árið 2019.

 

Aðstoðarkennari í verklegum æfingum:

Margrét Helga Hagbarðsdóttir, sjúkraþjálfari.

 

Tímasetning og staðsetning:

Námskeið á höfuðborgarsvæðinu: 14. – 15. September kl 8:30-16:00 báða dagana. Námskeiðið er haldið í TÁP sjúkraþjálfun í Kópavogi.

Námskeið á Akureyri: 7.-8. september. Kl 8:30-16:00 báða dagana. Námskeiðið er haldið á Bjargi

 

Efni námskeiðs:

Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á greiningu og meðferð á hálsvandamálum, en ekki einungis með staðbundinni hálsskoðun, heldur verður lögð áhersla á að skoða ”stóra samhengið" á þann hátt að skoða hvaða svæði hafa gjarnan mikil áhrif á hálsinn. Það verður m.a. fara í efni sem tengist taugum sem staðsettar eru í hálsinum, bæði hálstaugum og þeim heilataugum / - kjörnum eru á þessu svæði. Mikil áhersla verður á praktískt efni og æfingar sem getur nýst við klíníska vinnu.

 

Lokað fyrir skráningu