Sértímar (verklegir) fyrir ykkar hóp, sem eru kenndir í Heilsuborg (6 klst):
- Föstudaginn 23.nóvember 2018 kl 8:10-11:10 (Karó: neðri háls handtök og Hófí: efri háls handtök og TMJ vöðva meðferðir – handtök)
- Föstudaginn 29. mars 2019 kl 8:10-11:10 (Karó Th og Lx handtök og Hófí pelvis og hip jt handtök)
Sameiginlegir fyrirlestrar með nýja hópnum í ÍSÍ húsinu (10 klst):
- Fös 22.mars 2019 kl 13:00-17:00 (samantekt og case – fyrri hluti)
- Lau 23.mars 2019 kl 13:00-14:30 (mjaðmagrind, mjöðm – nýtt efni að hluta til)
- Sun 24. mars 2019 kl 8:30-13:00 (samantekt og case – seinni hluti)
Skoðanir á tímabilinu:
- Aftur mælumst við til að þið skoðið með samnemanda og notið staðlaða formið sem við gáfum ykkur síðast til að æfa skoðun.
- Skoðun á skjólstæðingi í 1 klst og umræður með kennara í 1 klst.
- Þessi skoðun er á tímabilinu 23. nóvember 2018– 29. mars 2019 í Heilsuborg, hægt er að fá undanþágu með aðrar tímasetningar.
Heimanám: Gert er ráð fyrir 9 klst í heimanám á tímabilinu til að lesa nýja efnið og æfa skoðun og handtök, en auk þess er gott að rifja upp efnið frá síðustu önn eftir þörfum.
Mat á þessum hluta námskeiðs:
Skoðun á nýjum skjólstæðingi sem mun halda áfram í meðferð hjá ykkur (ef það er hægt). Eins og síðast þá greiðir skjólstæðingurinn fyrir skoðun eins og hann myndi almennt gera, eini munurinn er að hann hefur 4 augu í stað 2 til að skoða sig, auk 1 klst umræðu á milli sjúkraþjálfaranna eftir skoðunina.
Matið er: Staðið / fallið út frá þessari skoðun 50% og út frá mætingu og þátttöku í tímum 50%, það þarf að standast báða hlutana ef sækja á um ECTS einingar hjá HÍ. Hægt er að sækja um 1 ECTS einingu í meistaranámi við HÍ innan 5 ára fyrir þetta námskeið.
Námskeiðið telur sem 29 tíma námskeið hjá fræðslunefnd.
Áætlað verð þessa hluta:
35.000 kr (ath skjólstæðingur greiðir sjálfur fyrir sína skoðun eins og síðast, en klukkutíminn með kennara á eftir er innifalinn í þessu verði)