Viðburðir

Aðalfundur Félags sjúkraþjálfara 2024

Kallað er eftir framboðum til trúnaðarstarfa

  • 13.3.2024, 17:00 - 19:00, Borgartún 6

Aðalfundur Félags sjúkraþjálfara 2024 verður haldinn þann 13. mars nk.

Stefnt er að því að halda fundinn í húsnæði félagsins hjá BHM að Borgartúni 6 og í streymi.

Kallað er eftir framboðum til trúnaðarstarfa, framboðsfrestur er til 21. febrúar 2024 skv. starfsreglum félagsins – sjá hér að neðan. Framboð sendast á ritara félagsins, Þóru Björg Sigurþórsdóttur á netfangið thorabs@landspitali.is

Lagabreytingatillögur eða önnur erindi þurfa að hafa borist til stjórnar FS í síðasta lagi þann 21. febrúar.

Nánari dagskrá og útlistun á framkvæmd kemur síðar, en félagar eru hvattir til að taka tímann frá.

Fh. stjórnar FS
Gunnlaugur Már Briem
Formaður

Úr starfsreglum um framkvæmd kosninga til trúnaðarstarfa í félaginu:

2. Stjórn og aðrar trúnaðarstöður

Framboð til trúnaðarstarfa félagsins (annarra en formanns) skulu hafa borist uppstillingarnefnd amk. 3 vikum fyrir aðalfund og upplýsingar um frambjóðendur sendar út með aðalfundarboði. Því aðeins er hægt að bjóða sig fram á aðalfundi að ekki hafi komið framboð í embættið fyrir tilskilinn framboðsfrest. Kjósa skal skriflega á aðalfundi, séu fleiri í kjöri en kjósa á.

Starfsreglur-um-framkvaemd-kosninga