Konur, heilsurækt og grindarbotninn
Sem sjúkraþjálfari á sviði kvennaheilsu og þvagfæravandamála hef ég kynnst mörgum konum, ungum sem öldnum sem leita sér aðstoðar vegna veikleika sem í sumum tilfellum (en ekki öllum) tengjast barneignum og hafa dregið úr styrk grindarbotnsvöðva svo fátt eitt sé talið. Það getur skapað vandamál sem draga úr lífsgæðum og frelsi kvenna til þátttöku í athöfnum sem krefjast áreynslu.
Að hverfa frá athöfnum sem reyna á mann er ekki gott og sem betur fer er mikil vitundarvakning á sviði heilsuræktar og konur jafnt sem karlar gera kröfu um gott form, góða heilsu. Við erum jú öll ábyrg fyrir heilsu okkar, okkur ber skylda til að varðveita heilsuna eftir bestu getu og þekkingu, jafnvel þótt við höfum orðið fyrir hnjaski eða tjóni á heilsunni. Það er í raun ekki valkostur að gefast upp fyrir heilsuleysi. Nýafstaðið maraþon sýndi svo um munaði að hvort sem hetjurnar höfðu misst útlimi, glímdu við erfiða krabbameinsmeðferð eða báru önnur mein, misáberandi þá er hægt að sigrast á mörgu ef hugurinn og eljan er til staðar. Flestir öðlast betri heilsu með einhverri hreyfingu, hún þarf að sjálfsögðu að vera við hæfi hvers og eins.
Fyrir mig var fyrsta vika í vinnu eftir sumarfrí sérstaklega gleðileg. Þrír af mínum skjólstæðingum eða viðskiptavinum (ekki vil ég kalla þá sjúklinga) komu sérstaklega glaðir (lesist: glaðar) í bragði. Þær áttu það allar sameiginlegt að hafa hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu, ein þeirra 10 km og tvær höfðu farið hálft maraþon. Þær höfðu sigrast á því mótlæti að geta ekki reynt á sig án þess að finna fyrir áreynsluþvagleka.
Skv. rannsóknum þjást um það bil 40% kvenna af þvagleka, mismiklum og af mismunandi toga. Oft er það þannig að í daglegu lífi verður viðkomandi ekki var við veikleika en við aukið álag birtist hann. Hlaup, hopp, sipp, stökk, trambolín, fimleikaiðkun og margt fleira reynir mikið á grindarbotninn. Í sumum íþróttagreinum hefur áreynsluþvagleki mælst hjá hátt í 80% kvenkyns þátttakenda. Það er í flestum tilvikum hjá ungum konum sem ekki hafa fætt börn en eru undir miklu álagi í sinni grein. Það er ekki mikið talað um þessa hluti en staðreyndirnar tala sínu máli. Margar konur vita hvað ég er að tala um, hafa farið af stað en fundið fyrir veikleika sem stundum lagast af sjálfu sér en stundum ekki.
En það er hægt að takast á við vandann, oftast með réttu æfingunum og rétta æfingarálaginu. Þó hafa rannsóknir sýnt að u.þ.b. 30% kvenna getur ekki spennt grindarbotninn með einföldum leiðbeiningum, heldur þurfa hjálp og leiðsögn til að finna vöðvana. Grindarbotnsæfingar eru ekki tískufyrirbæri, heldur sígilt lag sem ætti að spila sem oftast. Við eigum að elska okkur sjálfar og gera kröfur um lífsgæði. Það er ALDREI ástæða til að hætta að hreyfa sig vegna þessara mála. Það er alltaf betra að fara af stað en sleppa því. Oft þarf þó að sníða sér stakk eftir vesti í upphafi og forðast yfirgengilegt álag á botninn. Láta sér frekar vaxa ásmeginn í iðkuninni og fá aðstoð sjúkraþjálfara ef ekki gengur að takast á við vandamálið sjálfur. Sjúkraþjálfarar eru jú sérfræðingar í skoðun og mati á stoðkerfi mannsins.
Nú er bara að fara af stað og byrja.
Þorgerður Sigurðardóttir
Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari
MSc. í líf-og læknavísindum