Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa í 60-100% starf
03.07.2025
Um er að ræða framtíðarstarf og miklir möguleikar eru í boði í útfærslu starfsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir samkomulagi.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa í 60-100% starf eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf og miklir möguleikar eru í boði í útfærslu starfsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir samkomulagi.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem eru lausnamiðaðir og geta unnið sjálfstætt.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf. Sjúkraþjálfari starfar í nánu samstarfi við fagfólk á deildum stofnunarinnar. Starfssvið eru m.a. hjúkrunardeild, sjúkradeild, hjartaendurhæfing og hreyfistjórnun. Sjúkraþjálfarar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn.
Hæfniskröfur
• Sjúkraþjálfari með íslenskt starfsleyfi
• Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
• Faglegur metnaður og vandvirkni
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Hlýtt og jákvætt viðmót
• Hjálpartækjakunnátta
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Starfsreynsla er kostur
Frekari upplýsingar um starfið Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Upplýsingar veitir:
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir adda.th.sigurjonsdottir@hss.is
Umsóknarfrestur til og með 21.7.2025
Hægt er að sækja um starfið hér: Sjúkraþjálfari | Ísland.is