Sjúkraþjálfari á Landspítala við Hringbraut

Boðið er upp á 36 stunda vinnuviku í 100% starfi með það að markmiði að stuðla að betri heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. 

Vilt þú verða hluti af öflugum og samheldnum hópi sjúkraþjálfara þar sem fagmennska, fjölbreytni og þverfaglegt samstarf ríkir?

Þetta er kjörið tækifæri fyrir áhugasaman sjúkraþjálfara sem vill dýpka þekkingu sína, auka starfsreynslu og vinna í nærandi og fjölbreyttu starfsumhverfi. Við hvetjum bæði reynslumikinn sjúkraþjálfara sem og nýútskrifaðan til að sækja um. Meðal þeirra deilda sem við störfum á eru: hjartadeild, hjarta- og lungnaskurðdeild, almenn kviðarholsskurðdeild, krabbameinsdeild, gjörgæsla, barnadeild og kvennadeild.

Góð aðlögun er í boði fyrir nýtt starfsfólk og tryggjum við handleiðslu frá reyndum sjúkraþjálfurum. Einnig er lögð rík áhersla á fagþróun og símenntun, þátttöku í rannsóknum og öflugt þverfaglegt samstarf.

Vellíðan starfsfólks er í forgrunni og hlúð er að jákvæðu og hvetjandi starfsumhverfi. Boðið er upp á 36 stunda vinnuviku í 100% starfi með það að markmiði að stuðla að betri heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Einnig eru í boði samgöngusamningur og önnur starfstengd fríðindi.

Starfið er dagvinna á virkum dögum en að lokinni aðlögun er möguleiki á að taka að sér gæsluvaktir á kvöldin og um helgar. Um er að ræða 80-100% starfshlutfall og er starfið laust nú þegar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skoðun, mat og meðferð sjúklinga

Skráning í sjúkraskrárkerfi

Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda

Þátttaka í þverfaglegu teymi

Virk þátttaka í faglegri þróun

Hæfnikröfur

Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari

Faglegur metnaður og ábyrgð

Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót

Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfun, endurhæfing

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.09.2025

Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður S Einarsdóttir - ragnheie@landspitali.is  
Ingibjörg Magnúsdóttir - ingimagn@landspitali.is