Viðburðir
Fræðsla á vegum FSSH
Verkleg kynning á BBAT nálgun
Verkleg kynning á BBAT nálguninni verður haldin á vegum Félags sjúkraþjálfara um sálvefræna heilsu (FSSH) þriðjudaginn 30. apríl á Æfingastöðinni Háaleitisbraut 13.
Kynningin hefst stundvíslega kl. 16:30 og lýkur kl. 18:00.
Opið fyrir alla sjúkraþjálfara, bæði fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast BBAT á eigin skinni og einnig þá sem hafa sótt námskeið í BBAT og vilja upprifjun.
Munið að mæta í þægilegum fötum og hafa hlýja sokka meðferðis.
Leiðbeinandi: Anna Kristín Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari,kennari í BBAT, með dipl. í BBAM
Bestu kveðjur og Gleðilegt Sumar!
Stjórn FSSH