Óskum eftir að ráða sjúkraþjálfara
29.01.2024
Vegna góðrar verkefnastöðu og eftirspurnar þurfum við hjá Endurhæfingu – þekkingarsetri að bæta 1- 2 sjúkraþjálfurum við flottan hóp fagfólks.
Vegna góðrar verkefnastöðu og eftirspurnar þurfum við hjá Endurhæfingu – þekkingarsetri að bæta 1- 2 sjúkraþjálfurum við flottan hóp fagfólks. Endurhæfing - þekkingarsetur veitir sérfræðiþjónustu á sviði endurhæfingar, hæfingar og hjálpartækja. Góð þjálfunaraðstaða, m. a. innþjálfunarlaug sem gefur mikla möguleika til þjálfunar einstaklinga og hópa. Fjölbreytt starf og frábærir vinnufélagar sem vinna þétt saman. Handleiðsla í boði.
Menntunar – og hæfniskröfur
• Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
• Íslenskukunnátta
• Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
• Faglegur metnaður
Stöður eru lausar nú þegar eða eftir samkomulagi og hlutastarf möguleiki. Góð föst mánaðarlaun í boði.
Vinnutími mán. - fim. 08:00 til 15:45 og föstudaga 08:00 - 15:00
Allar nánari upplýsingar veitir:
Guðný Jónsdóttir framkvæmdastjóri, netfang: gudny@endurhaefing.is
Sími: 414 4500