Afnám grímuskyldu og áhrif á starfsemi sjúkraþjálfara
Vakin er athygli á nýjustu reglugerð heilbrigðisráðherra
Vakin er athygli á nýjustu reglugerð heilbrigðisráðherra
Til félagsmanna
Vakin er athygli á nýjustu reglugerð heilbrigðisráðaherra varðandi sóttvarnir, sjá: https://www.stjornarradid.is/
Í reglugerðinni segir: „Mælst er til þess að notkuð sé andlitsgríma þar sem 1 metra fjarlægð er ekki viðkomið, ef það er unnt. Heilbrigðisstofnunum er heimilt skv 6. gr. að gera kröfu um andlitsgrímu“.
Samkvæmt upplýsingum sem félaginu hafa borist þá lítur Heilbrigðisráðuneytið svo á að ekki sé kveðið á um grímuskyldu heilbrigðisstarfsmanna og skjólstæðinga þeirra.
Sérhver staður/sjúkraþjálfunarstofa getur skv. þessu lagt mat á og ákveðið sjálf hvaða reglur skuli gilda í samræmi við eðli starfseminnar, en Félag sjúkraþjálfara telur skynsamlegt að sjúkraþjálfarar viðhaldi grímunotkun í slíkum aðstæðum þegar ekki er unnt að viðhalda 1. m fjarlægð.
Fh. Félags sjúkraþjálfara
Unnur Pétursdóttir
Formaður
Uppfært 21.10.21