Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er 8. september

Þema dagsins í ár er krónískir verkir – FS verður á LÝSUnni á Akureyri

5.9.2019

Þema dagsins í ár er krónískir verkir – FS verður á LÝSUnni á Akureyri

Heimssamband sjúkraþjálfara (WCPT) hefur gefið út að á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar í ár verði áherslan lögð á króníska verki og allt sem þeim fylgir. Stærsti einstaki þáttur þess vanda eru bakverkir og er því lögð sérstök áhersla á þann málaflokk. Lögð er áhersla mikilvægi þess að kveða niður mýtur á borð við að hreyfing sé hættuleg og að almenningur fái notið þjónustu og leiðbeininga sjúkraþjálfara til að áhrif vandans verði sem minnst.

Poster-1-Mynd


Félag sjúkraþjálfara verður af þessi tilefni með fyrirlestur á LÝSUnni í Hofi, Akureyri, laugardaginn 7. sept kl 11.30, sem ber heitið “Langvinnir verkir og bakið”, sjá:

https://www.facebook.com/events/1191691997703611/

WCPT hefur gefið út íslenska þýðingu á veggspjöldum dagsins, sem við hvetjum sjúkraþjálfara til að prenta út og dreifa sem víðast.

https://www.wcpt.org/wptday-posters-icelandic


Poster-2-MyndÞar sem daginn ber að þessu sinni upp á sunnudegi verður minna við haft en oft áður, en sjúkraþjálfarar eru engu að síður hvattir til að halda umræðu um mál dagsins á lofti í kringum daginn og ekki væri verra að einhver splæsti á gott með föstudagskaffinu í tilefni dagsins!



Um alþjóðlegan dag sjúkraþjálfunar:
https://www.wcpt.org/wptday