Árleg ENPHE ráðstefna var haldin rafrænt 14. - 16. október síðastliðinn
Tvenn BS- verkefni nema við Háskóla Íslands hlutu verðlaun
Tvenn BS- verkefni nema við Háskóla Íslands hlutu verðlaun
Fréttir af árlegri ENPHE ráðstefnu sem var rafræn og send út frá Stokkhólmi, 14.-16. október: https://www.enphe2021.se/. Fyrir þá sem ekki þekkja til ENPHE þá er þetta skammstöfun fyrir European Network of Physiotherapy in Higher Education (https://www.enphe.org/).
Föstudaginn 15. október voru afhent verðlaun fyrir lokaverkefni nemenda í BS og MS námi. Vegna covid-19 þurfti að fresta verðlaunaafhendingunni í fyrra (2020) þar til núna.
Tvö verkefni frá Háskóla Íslands hrepptu annað sætið, hvort í sínum flokki:
- BS-verkefni 2021: „Comparison of telerehabilitation and traditional rehabilitation after total knee arthroplasty: Mini-systematic review“ (eða "Samanburður fjarendurhæfingar og staðendurhæfingar eftir heilgerviliðsaðgerð í hné: Mini systematic review"). Höfundar: Bjarni Geir Gunnarsson, Guðrún Marín Viðarsdóttir og Ísak Sigfússon. Leiðbeinandi: Dr. Abigail Grover Snook, aðjúnkt HÍ.
- MS-verkefni 2020: „Musculoskeletal pain and its effect on daily activity and behavior in icelandic children with juvenile idiopathic arthritis“ (eða „Stoðkerfisverkir og áhrif þeirra á daglegar athafnir og hegðun íslenskra barna með barnagigt“). Höfundur: Svanhildur Arna Óskarsdóttir, sjúkraþjálfari MS, Leiðbeinandi: Björg Guðjónsdóttir, lektor HÍ.
Laugardaginn 16. október var Björg Guðjónsdóttir endurkjörin í stjórn ENPHE til næstu 4. ára.
ENPHE ráðstefna næsta árs mun verða haldin í Portúgal 15.-17. september.
Sólveig Ása, landsfulltrúi Íslands/HÍ í ENPHE