Dagur sjúkraþjálfunar 2021
Dagurinn verður að þessu sinni í formi fyrirlestraraðar
Dagurinn verður að þessu sinni í formi fyrirlestraraðar
Eins og kunnugt er þurfti að aflýsa Degi
sjúkraþjálfunar árið 2020 og því miður verður ekki hægt að halda Dag
sjúkraþjálfunar 2021 með hefðbundnum hætti.
Þess í stað verður Dagur sjúkraþjálfunar
árið 2021 haldinn í formi fyrirlestraraðar sem hefst á hádegi föstudaginn 5. mars
kl 12, sem hefði átt að vera “Dagurinn”, og svo vikulegir hádegisfyrirlestrar
sem hér segir:
Mið. 17. mars kl 12
Mið. 24. mars kl 12
Mið. 31. mars kl 12
Efni fyrirlestranna verður auglýst þegar nær dregur.
Það er von okkar að sjúkraþjálfarar geti nýtt hádegishlé sín til að safnast saman í litlum hópum og njóta þeirra dagskrár og fræðslu sem boðið er upp á.
Þess ber að geta að fræðslunefnd félagsins verður einnig með öfluga fyrirlestraröð á sínum vegum í stað þeirra námskeiða sem fyrirhuguð voru, en sú dagskrá eru kvöldfyrirlestrar sem dreifast munu á alla önnina og verður kynnt af fræðslunefnd.
Fh framkvæmdanefndar um Dag sjúkraþjálfunar
Unnur Pétursdóttir
Form. FS