Dagur sjúkraþjálfunar verður haldinn 13. maí 2022

Ný dagsetning!

7.2.2022

Ný dagsetning!

Dagur sjúkraþjálfunar verður haldinn þann 13. maí 2022 í Smárabíói. Dagurinn verður stútfullur af áhugaverðu efni, enda er langt síðan við hittumst og margir sem hafa afar áhugavert efni fram að færa.

Aðalfyrirlesari verður Dr. Paul Hodges, https://shrs.uq.edu.au/profile/157/paul-hodges og verður hann með námskeið í framhaldi af deginum.

Smárabíó er ný staðsetning fyrir daginn. Staðurinn býður upp á mun meiri sveigjanleika en fyrri staður, almennt rými fyrir bæði gesti og sýnendur er mun stærra og rýmra verður því um alla.

Við hlökkum mikið til að halda daginn á þessum nýja stað í vetrarlok og vonumst til að sem allra flestir sjúkraþjálfarar landsins muni hafa tök á að mæta. Það er kominn tími á að hittast!

Skráning á Dag sjúkraþjálfunar mun hefjast í mars og verður auglýst sérstaklega.

Dagurinn mun enda með partýi á SPOT bar, sem er nærri Smárabíói (5 mín. gangur). Fyrirkomulag borðapantana verður kynnt fljótlega.

Fh. stjórnar FS og framkvæmdanefndar um Dag sjúkraþjálfunar
Unnur P
Form FS.