Degi sjúkraþjálfunar 2020 aflýst

16.4.2020

Eftir ítarlega skoðun stjórnar hefur sú ákvörðun verið tekin að aflýsa Degi sjúkraþjálfunar 2020

Til félagsmanna FS

Eins og kunnugt er þurfti að fella niður Dag sjúkraþjálfunar þann 20. mars sl vegna Covid-19 faraldurs og samkomubanns.

Stjórn hefur skoðað alla fleti málsins, með tilliti til nýrrar dagsetningar, en niðurstaðan er sú að aflýsa deginum algerlega þetta árið. Nokkrar ástæður eru fyrir því, en þær helstu að hentugar dagsetningar fengust ekki á Hilton hótelinu, sem og að nú þegar er hafinn undirbúningur að Degi sjúkraþjálfunar sem haldinn verður föstudaginn 5. mars 2021.

Engu síður viljum við halda upp á það að 80 ár eru liðin frá stofnun fyrsta Félags sjúkraþjálfara og verður það gert með kvöldsamkomu í haust, álíkri þeirri sem upphaflega var áætlað að halda að kvöldi Dags sjúkraþjálfunar, og verður það auglýst síðar.

Þeir sem voru búnir að greiða skráningargjald fá það bakfært inn á kreditkortareikning sinn og þurfa ekki að sækja um það sérstaklega. Stefnt er á að endurgreiðslum verði lokið fyrir lok næsta mánaðar

Fh stjórnar FS
Unnur Pétursdóttir
Formaður FS


Dags.: 16.4.2020