Fundur fagnefndar ER-WCPT á Íslandi
Fundað var með Heilsugæslu og Heilbrigðisráðuneyti
Fundað var með Heilsugæslu og Heilbrigðisráðuneyti
Fagnefnd Evrópudeildar sjúkraþjálfara (ER-WCPT) fundaði á Íslandi dagana 15. – 16. febrúar 2019 í húsnæði okkar hjá BHM, Borgartúni 6, Reykjavík. Með þeim í för var Esther-Mary D'Arcy formaður deildarinnar og Jill Long, sem er fulltrúi ER-WCPT í Primary Care Forum í Evrópu.
Á fimmtudaginn 14. febrúar áttu þær ásamt formanni
og varaformanni FS fundi með Þróunarmiðstöð Heilsugæslunnar og fulltrúum
Heilbrigðisráðuneytisins. Síðdegis skoðuðu þær Styrk og Grensásdeildina. Um
kvöldið var svo opinn fundur með allri nefndinni, stjórn og kjaranefnd félagsins,
þar sem rætt var um Evrópudeildina, fagnefndina, hlutverk hennar
og verkefni.

Á föstudeginum og laugardeginum var svo sjálfur fundur nefndarinnar
haldinn, en á föstudeginum var farið í skoðunarferð í sjúkraþjálfuna Aflið, sem
er í sama húsi. Gestirnir okkar voru afar ánægð að sjá hversu vel búin stofan
er og voru sérstaklega hrifin af þeirri miklu áherslu sem lögð er á að mæta
þörfum barna á stofunni, en þar starfa nú nokkrir sjúkraþjálfarar sem sérstaklega
sinna börnum, allt niður í nýfædda hvítvoðunga.
Á fundinum var farið er yfir margvísleg fagleg málefni sjúkraþjálfunar á Evrópu-grunni, svo sem klínískar leiðbeiningar, sí- og endurmenntun sjúkraþjálfara, gæðamál, stöðu sjúkraþjálfunar í heilsugæslu, sérhæfingu o.m.fl.
Nefndina
skipa: Esther-Mary D'Arcy formaður Evrópudeildarinnar (Írland), Jill Long
(Írland), Guus Meerhoff (Holland), Carlo Saad (Líbanon), Charlotte Chruzander
(Svíþjóð), Nicole Muzar (Austurríki), Nirit Rotem (Ísrael) og Victoria Massalha
(Malta). Einnig starfar með nefndinni David Gorria, framkvæmdastjóri ER-WCPT,
en hann komst ekki til landsins og var með á skype, þegar á þurfti að halda.
Óvæntur vinkill var á
heimsókninni, sem við vissum ekki af fyrirfram, en formaður lýbanska
sjúkraþjálfarafélagsins, Antoine
Abboud, ákvað að fylgja sínum manni og heimsækja Ísland. Það reyndist
afar áhugavert að hitta þennan formann frá landi sem svo sannarlega hefur
fengið aðra og verri útreið á undanförnum áratugum en við hér á Íslandi og
upplýsti hann okkur um að hann hefði fæðst sama ár og borgarastyrjöldin hófst
(1975) og hans fyrstu barnsminningar eru stríðið og átökin í Beirút, þar sem
hann býr.
Nefndin var afar ánægð með móttökurnar og umgjörð fundarins og sérstaklega þakklát fyrir að fá að hitta íslenska sjúkraþjálfara og sjá þann háa standard sem er á sjúkraþjálfun á Íslandi.
Unnur P
Form. FS