Heimild til frestunar á niðurfellingu orlofs framlengd um ár

22.3.2023

Náðst hefur samkomulag milli opinberra launagreiðenda og heildarsamtaka opinberra starfsmanna um að framlengja heimild til frestunar á niðurfellingu orlofs um eitt ár, eða til 30. apríl 2024

Tilkynnt var um það á heimasíðu BHM í gær, 21. mars að framlengja heimild til frestunra á niðurfellingu orlofs. Þessar upplýsingar eiga jafnframt við um Reykjavíkurborg, ríki, samtök íslenskra sveitafélaga og SFV. 

Fresturinn er veittur vegna utanaðkomandi aðstæðna á samningstímanum. Orlofið getur að hámarki verið 60 dagar. Eftir 30. apríl 2024 fellur eldra orlof niður.

Vinnuveitandi ber ábyrgð á að skipuleggja orlofstöku starfsfólks síns að teknu tilliti til óska þess eins og unnt er vegna starfseminnar.

Nánar má lesa um málið á heimasíðu BHM