Hreyfivika – Move Week 2017
Hreyfivika er hluti af stórri Evrópskri herferð sem nefnist MOVE WEEK og er hluti af NowWeMOVE herferð ISCA. Í ár fer Hreyfivikan fram 29. maí- 4.júní
Hreyfivika er hluti af stórri Evrópskri herferð sem nefnist MOVE WEEK og er hluti af NowWeMOVE herferð ISCA. Í ár fer Hreyfivikan fram 29. maí- 4.júní
Hreyfivika „Move week“
verður haldin dagana 29. maí - 4. júní um gjörvalla Evrópu. Markmið Hreyfiviku er
kynna kosti þess að lifa heilbrigðum lífsstíl og taka virkan þátt í hreyfingu
og íþróttum til heilsubótar. Boðberar hreyfingar um allt land vinna nú að því
að skipuleggja viðburði, kynna það starf sem er í boði og jafnvel nýjar
íþróttir og tækifæri sem standa til boða. Allt til þess að allir geti fundið
sína uppáhalds hreyfingu.
#minhreyfing
HVAÐ ER HREYFIVIKA UMFÍ?
Hreyfivika UMFÍ er árleg lýðheilsuherferð og hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka þátt í hreyfingu og íþróttum. UMFÍ vill að allir landsmenn finni sína uppáhalds hreyfingu. #minhreyfing. Börn eiga að hreyfa sig að lágmarki 60 mínútur daglega og fullorðnir í 30 mínútur
HVAÐ ER AÐ VERA BOÐBERI HREYFINGAR?
Boðberi hreyfingar er fyrirmynd og hrífur fólk með sér í hreyfingu. Hann er jafnframt sá einstaklingur, það íþróttaféla, það sveitarfélag eða fyrirtæki sem skráir sig á hreyfivika.is og stendur fyrir viðburði. Viðburðir geta verið allskonar, vinaæfingar, frítt í sund, útileikir, gönguferðir, lengt hádegishlé með leikjum, fræðsla eða allt sem hefur jákvæð áhrifáhrif á líkamlega, andlega og félagslega heilsu okkar. Allir geta skráð sig sem boðbera hreyfingar.
ÞÁTTTAKENDUR
Með yfir milljón þátttakendur árið 2016 varð Hreyfivikan MOVE WEEK stærsta lýðheilsuherferð í Evrópu sem hefur það að markmiði að því að fjölga íbúum álfunnar sem hreyfa sig reglulega.
Félag sjúkraþjálfara hvetur félagsmenn sína til að taka virkan þátt í Hreyfivikunni, skrá sig sem boðbera hreyfingar og leggja sitt af mörkum til að efla hreyfingu landsmanna.
Einnig eru sjúkraþjálfarar hvattir til að bjóða upp á kynningartíma, fyrirlestra, námskeið eða hvað annað sem þekking og reynsla sjúkraþjálfara býður upp á
Hreyfing er okkar mál – látum ekki okkar eftir liggja !!!
Skráning sem boðberi Hreyfiviku: http://iceland.moveweek.eu/move-agent/
Skrá viðburð: http://iceland.moveweek.eu/events/
Nánari upplýsingar um Hreyfivikuna er hægt að finna á heimasíðu verkefnisins: http://iceland.moveweek.eu/