Vísindaferð á Æfingastöðina
Föstudaginn 6. nóvember kl. 17
Föstudaginn 6. nóvember kl. 17
Sjúkraþjálfarar á Æfingastöðinni bjóða kollegum sínum í vísindaferð föstudaginn 6. nóvember kl 17:00-19:00. Æfingastöðin er rekin af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og er til húsa að Háaleitisbraut 13, Reykjavík.
Tekið verður á móti gestum á 4. hæð þar sem Áslaug Guðmundsdóttir yfirsjúkraþjálfari mun í stuttu máli fara yfir sögu Æfingastöðvarinnar og kynna starfsemina. Síðan munu gestir fá leiðsögn um húsið og nánari upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði.
Boðið verður upp á léttar veitingar og vonumst við til þess að sem flestir sjúkraþjálfarar líti við og eigi skemmtilega stund með okkur.
Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á physio@physio.is
Hlökkum til að sjá þig
Sjúkraþjálfarar Æfingastöðvarinnar