Vísindasjóður FS óskar eftir styrkumsóknum

Stjórn Vísindasjóðs FS auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2016

7.12.2015

Stjórn Vísindasjóðs FS auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2016

Styrkjum úr Vísindasjóði verður úthlutað á Degi Sjúkraþjálfunar, þann 4.mars, 2016. Frestur til að skila inn umsóknum er til 15. janúar 2016. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem hægt er að finna á heimasíðu félagsins, www.physio.is  (félagið-nefndir-vísindasjóður-skjöl). Þar er einnig að finna starfsreglur sjóðsins sem umsækjendur eru hvattir til að kynna sér tímanlega svo tryggt sé að umsókn sé vel unnin. Markmið Vísindasjóðs er að styrkja rannsóknarverkefni, þróunarverkefni og viðamiklar ritsmíðar innan sjúkraþjálfunar. Styrkt verkefni/rannsóknir skulu hafa ótvírætt faglegt gildi innan sjúkraþjálfunar og vera faginu til framdráttar.

Einnig er minnt á að tekið er við umsóknum í Þýðingasjóð allt árið um kring. Markmið Þýðingasjóðs er að styrkja þýðingar á viðurkenndum

mælitækjum og spurningalistum innan sjúkraþjálfunar. Styrkt verkefni skulu hafa ótvírætt faglegt gildi og vera faginu til framdráttar.

Stjórn Vísindasjóðs hvetur alla sem eru að vinna eða hyggjast vinna verkefni sem uppfylla kröfur sjóðanna til að sækja um styrk. Umsækjendur skulu kynna sér starfsreglur sjóðanna og vanda umsóknir eins og kostur er. Ef ekki verður unnt að styrkja alla umsækjendur verður horft til gæða umsókna og vísindalegs gildi verkefna fyrir sjúkraþjálfun.

Senda skal umsóknir rafrænt á netfang nefndarmanna Vísindasjóðs:

bergbald@landspitali.is  (Bergþóra Baldursdóttir),

joninaw@virk.is  (Jónína Waagfjörð),

kbriem@hi.is  (Kristín Briem)

Merkja skal að um umsókn í sjóðina sé að ræða.