Reykjalundarnámskeið SÍBS á vorönn 2016

Til upplýsingar

7.1.2016

Til upplýsingar

Reykjalundarnámskeið SÍBS á vorönn 2016 hefjast 18. janúar og snúa m.a. að geðheilbrigði og lýðheilsu. Námskeiðin eru aðlöguð útgáfa af námskeiðum sem notuð eru í meðferð á Reykjalundi. Sjá www.sibs.is/namskeid.

Eftirfarandi námskeið fara af stað í janúar:

·         Streita og jafnvægi í daglegu lífi: Markmiðið er að fræða þátttakendur um streitu almennt og hvernig hún hefur áhrif á daglegt líf. Hefst mánudaginn 18. janúar.

·         Viltu kynnast HAM? Á námskeiðinu er farið yfir helstu kenningar og verkfæri í hugrænni atferlismeðferð (HAM). Hefst þriðjudaginn 19. janúar.

·         Að takast á við króníska verki, fræðsla: Markmiðið er að fræða almennt um stoðkerfisverki og eigin áhrifamátt til bættrar heilsu og aukinna lífsgæða. Hefst miðvikudaginn 20. janúar.

·         Hollara mataræði: Á námskeiðinu er farið yfir leiðbeiningar um hollt mataræði og tengsl við heilbrigði. Hefst fimmtudaginn 21. janúar.

Námskeiðin eru kennd af okkar færustu sérfræðingum á hverju sviði og þú getur treyst faglegu innihaldi þeirra.

Nánari upplýsingar um námskeiðin á vorönn má finna á www.sibs.is/namskeid.