Nýr starfsmaður á skrifstofu FS

Steinunn S. Ólafardóttir sjúkraþjálfari hefur verið ráðin til starfa á skrifstofu félagsins og hefur hún störf á nýja ári

12.12.2019

Steinunn S. Ólafardóttir sjúkraþjálfari hefur verið ráðin til starfa á skrifstofu félagsins og hefur hún störf á nýja ári

Steinunn S. Ólafardóttir sjúkraþjálfari hefur verið ráðin til starfa á skrifstofu félagsins í 50% starfshlutfall og hefur hún störf á nýju ári. Í samræmi við auglýsingu verður hennar helsti starfsvettvangur eftirfarandi:

Ritstjóri Sjúkraþjálfarans
Starfsmaður fræðslunefndar
Starfsmaður framkvæmdanefndar um Dag sjúkraþjálfunar
Umsjón og skipulagning viðburða félagsins
Umsjón heimasíðu og samfélagsmiðla félagsins
Umsjón kliniskra leiðbeininga og mælitækjabanka
Föstudagsfréttir
Önnur verkefni sem stjórn felur viðkomandi

Steinunn-S.-Olafardottir

Steinunn útskrifaðist sem sjúkraþjálfari árið 2015. Hún tók strax þátt í starfi félagsins og sat í framkvæmdanefnd um Dag sjúkraþjálfunar árin 2017-18. Hún var önnur tvegga “ungra framtíðarsjúkraþjálfara” sem sóttu heimsþing WCPT í S-Afríku árið 2017 og hefur verið í sambandi vð WCPT future síðan þá. Auk starfsins fyrir félagið starfar Steinunn í Heilsuborg.



Stjórn FS býður Steinunni velkomna til starfa og er þess fullviss að starfskraftar hennar muni verði félaginu lyftistöng.

Stjórn FS.