Nýr vefur BHM

Endurbættur vefur BHM fór í loftið í gær, 25. október 2022.

26.10.2022

Nýr og endurbættur vefur BHM er kominn í loftið!  
Opnun vefsins er stór áfangi en talsverð vinna var lögð í þarfagreiningu, hönnun og forritun frá grunni. Vefurinn var einfaldaður til muna með það að markmiði að gera hann aðgengilegri, skýrari og léttari. Við höfum farið yfir allt efni á gamla vefnum og endurskrifað, uppfært og betrumbætt. Markmiðið er betri þjónusta og stórbætt aðgengi að upplýsingum.

Við mælum eindregið með að setjast niður í næstu pásu og skoða nýjan og endurbættan vef BHM.