Samkomulag BHM og SA

Gildir um sjúkraþjálfara starfandi sem launþegar á almennum vinnumarkaði

6.12.2016

Gildir um sjúkraþjálfara starfandi sem launþegar á almennum vinnumarkaði

Hlutaðeigandi aðildarfélög BHM og Samtök atvinnulífsins hafa gengið frá samkomulagi um breytingu á gr. 6.7.1 í  kjarasamningi aðila.  Samkomulagið felur í sér að lífeyrismótframlag atvinnurekenda hækkar til samræmis við það sem nú gildir almennt á almennum vinnumarkaði. 

Þannig hækkar mótframlag atvinnurekenda á þessu ári úr 8% í 8,5%.   Frá 1. júlí 2017 verður það 10% og loks 11,5% frá 1. júlí 2018.  Starfsmaður greiðir hins vegar sjálfur 4% eins og áður.

Um skiptingu gjaldsins í samtryggingarsjóð og séreignasjóð fer skv. lögum um lífeyrissjóði og eftir atvikum eftir samþykktum hlutaðeigandi lífeyrissjóða.

Þetta samkomulag er jafnframt liður í yfirstandandi vinnu samningsaðila við að endurskoða gildandi kjarasamning. 

 

Samninganefnd BHM í málefnum SA.