Stjórn Vísindasjóðs FS auglýsir eftir umsóknum um styrki

Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2017

18.11.2016

Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2017

Styrkjum úr Vísindasjóði FS verður úthlutað á Degi Sjúkraþjálfunar, þann 17. febrúar 2017. Frestur til að skila inn umsóknum er til kl. 23:59 þann 15. janúar 2017. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem hægt er að finna á heimasíðu félagsins, physio.is (Um félagið-Stjórn og nefndir-Stjórn Vísindasjóðs). Þar er einnig að finna starfsreglur sjóðsins sem umsækjendur eru hvattir til að kynna sér tímanlega svo tryggt sé að umsókn sé vel unnin.

Markmið Vísindasjóðs er að styrkja rannsóknarverkefni, þróunarverkefni, þýðingar á viðurkenndum mælitækjum og spurningalistum innan sjúkraþjálfunar, og viðamiklar ritsmíðar innan sjúkraþjálfunar. Styrkt verkefni/rannsóknir skulu hafa ótvírætt faglegt gildi innan sjúkraþjálfunar og vera faginu til framdráttar. Athygli er vakin á styrkmöguleikum úr minningarsjóði Guðlaugar Pálsdóttur, fyrir verkefni í vinnuvistfræði eða tengdum sviðum.

Stjórn Vísindasjóðs hvetur alla sem eru að vinna eða hyggjast vinna verkefni sem uppfylla kröfur sjóðanna til að sækja um styrk. Umsækjendur skulu kynna sér starfsreglur sjóðsins og vanda umsóknir eins og kostur er. Ef ekki verður unnt að styrkja alla umsækjendur verður horft til gæða umsókna og vísindalegs gildis verkefna fyrir sjúkraþjálfun.

Senda skal umsóknir rafrænt á netfang nefndarmanna Vísindasjóðs:

bergbald@landspitali.is (Bergþóra Baldursdóttir),
harpahe@hi.is (Harpa Helgadóttir),
kbriem@hi.is (Kristín Briem)

Merkja skal að um umsókn í sjóðina sé að ræða.

Stjórn Vísindasjóðs Félag sjúkraþjálfara