Hreyfing og heilsa

Ertu í sóttkví? Ekki gleyma að hreyfa þig! Tenglar á myndbönd sem sýna góða hreyfingu sem hægt er að framkvæma í heimahúsum

10.3.2020

Ertu í sóttkví? Ekki gleyma að hreyfa þig! Tenglar á myndbönd sem sýna góða hreyfingu sem hægt er að framkvæma í heimahúsum

Í þjóðfélaginu eru nú um mundir fordæmalausar aðstæður, þar sem hundruðir manna hafa verið settar í sóttkví og fjölmargir hvattir til að vera sem mest heima við af ýmsum ástæðum. Í slíkum aðstæðum, þegar hefðbundin dagskrá fer út um gluggann, er hætta á að dagleg hreyfing gleymist.

Sjúkraþjálfarar vilja minna landsmenn á að það er hægt að gera margt þótt fólk komist ekki í líkamsræktina sína. Rétt að minna á, að samkvæmt leiðbeiningum Landlæknis er fólki í sóttkví heimilt að fara í gönguferðir á fáförnum stöðum, ef þess er gætt að vera aldrei í minna en 2m fjarlægð frá öðru fólki. Eins er heimilt að fara um akandi á eigin bíl, svo fyrir bíleigendur er hægt að komast á útivistarsvæði þótt það sé ekki í göngufæri við heimili. Útivera er hressandi og bætir bæði andlega og líkamlega heilsu og líðan, svo endilega drífið ykkur út en gætið að fyrrnefndum atriðum.

Einnig er hægt að gera margt heima við. Á Rás 1 er morgunleikfimi kl 9.45 dag hvern, sem tilvalið er að fylgja og hægt er að hlusta á marga þætti á vef Ríkisútvarpsins https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunleikfimi/6584?ep=1up8sq

Á heimasíðu Embættis Landlæknis má finna leiðbeiningar um hreyfingu https://www.landlaeknir.is/heilsa-og-lidan/hreyfing/ en einnig má finna tengla á myndbönd hér:

Hreyfing-tenglar

Við höfum bætt við hlekk á stólaleikfimi- þetta má finna á vef Heilsuveru:
https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/hreyfing/aefingar-heima-og-ad-heiman/stolaleikfimi/


Hvatningarorð sjúkraþjálfara til allra landsmanna þessa dagana eru: Ekki gleyma að hreyfa þig!