Opnað hefur verið fyrir skráningu á Dag sjúkraþjálfunar 2019
Dagurinn verður haldinn á Hilton Hótel Nordica, föstudaginn 15. mars 2019
Dagurinn verður haldinn á Hilton Hótel Nordica, föstudaginn 15. mars 2019
Dagur sjúkraþjálfunar verður haldinn föstudaginn 15. mars 2019. Að venju verður hann á Hilton Hótel Nordica við Suðurlandsbraut.
Skráning á Dag sjúkraþjálfunar: https://events.artegis.com/event/DS_2019
Aðalfyrirlesari dagsins verður Graciela Rovner, sem var einn fyrirlesara á ICPPMH2018 ráðstefnunni, sem haldin var á vegum félagsins í Reykjavík í apríl 2018. Nálgun hennar varðandi verki og verkjameðferð vakti mikla athygli og þótt ástæða til að fá hana aftur til að gefa félagsmönnum öllum kost á að hlýða á mál hennar.
https:// www.wcpt.org/congress/speakers/Graciela-Rovner
Minnum á að Dagur sjúkraþjálfunar er styrkhæfur hjá endurmenntunarsjóði BHM og starfsþróunarsetri háskólamanna. Fargjöld og gistikostnaður félagsmanna utan af landi er einnig styrkhæfur.
Dagskrá Dags sjúkraþjálfunar 2019
Dagur sjúkraþjálfunar 2019 - dagskrá
Framkvæmdanefnd um Dag sjúkraþjálfunar 2019
Netfang nefndarinnar er: dagursjukra@gmail.com
Steinunn S. Ólafardóttir, Heilsuborg
Guðný Björg Björnsdóttir, Hæfi
Jón Gunnar Þorsteinsson, Reykjalundur
Kristinn Magnússon, Ásmegin
Kolbrún Kristínardóttir, Æfingastöðin
Eins og í fyrra mun ráðstefnuskrifstofan Iceland Travel sjá um
ytri umgjörð dagsins.
Sýnendum er bent á að snúa sér beint til þeirra, radstefnur@icelandtravel.is
Fólk snúi sér þangað ef vantar upplýsingar eða aðstoð varðandi skráningu.