2 km göngupróf
Lýsing
Einfalt próf til að meta þol, hvetja og ráðleggja varðandi æfingaálag.
Mældur er sá tími sem það tekur að ganga 2 km. Púlsinn tekinn í lokin.
Markhópur
Almennir endurhæfingasjúklingar og heilbrigðir einstaklingar.
Leyfi
Til þess að nota þetta próf þarf leyfi. Eigendur eru UKK Institute í Tampere, Finnlandi og höfundar þess mæla með því að haft sé samband við tengilið prófsins í viðkomandi landi ef óskað er eftir kennslu í notkun þess.
Tengiliður á Íslandi
Bergur Heimir Bergsson, íþróttafræðingur á Reykjalundi, netfang: heimir@reykjalundur.is
Lykilorð
Þol, þolpróf

