2 mínútna göngupróf


Lýsing

Prófið gefur mynd af almennu líkamsástandi og spáir fyrir um sjúkdómsástand og lífslíkur. Má nýta til að meta áhrif endurhæfingar svo og lyfjagjafar.

Mælt er hve langt viðkomandi getur gengið á 2 mínútum. Jafnframt metin púls og blóðþrýstings viðbrögð, súrefnismettun, mæði og þreyta.

Ath! Prófið er ekki til formlega þýtt og staðlað á íslensku.


Markhópur

Lasburða, aldraðir einstaklingar með taugasjúkdóma og aðrir með skerta færni.

Tími

15-20 mínútur (með hvíld á undan).

Útbúnaður

Greiðfær gangur, skeiðklukka, blóðþrýstingmælir, hlustunarpípa, súrefnismettunarmælir og Borg skali fyrir mæði og eyðublað.


Heimildir

  • Brooks, D., Davis, A.M., Naglie, G. Validity of 3 physical performance measures in inpatient geriatric rehabilitation. Arch Phys Med Rehabil. 2006. Vol 87:105-110.
  • Solway, S., Brooks, D., Lacasse, Y., Thomas, S. A qualitative systematic overview of the measurement properties of functional walk tests used in the cardiorespiratory domain. Chest. 2001;119:256-270.


Lykilorð

Þol, þolpróf