6 mínútna göngupróf
Lýsing
Prófið gefur góða mynd af almennu líkamsástandi og spáir fyrir um sjúkdómsástand og lífslíkur. Má nota til að meta áhrif endurhæfingar og lyfjagjafar.
Mælt er hve langt viðkomandi getur gengið á 6 mínútum. Jafnframt metin púls og blóðþrýstings viðbrögð, súrefnismettun, mæði og þreyta við “submaximal” áreynslu.
Ath! Prófið er ekki til formlega þýtt og staðlað á íslensku.
Markhópur
Lungnasjúklingar og hjartasjúklingar. Taugasjúklingar, offitusjúklingar, aldraðir og aðrir með grun um skert þrek.
Tími
20-30 mínútur (með hvíld á undan).
Útbúnaður
Greiðfær gangur (minnst 30 m), skeiðklukka, blóðþrýstingmælir, hlustunarpípa, súrefnismettunarmælir, Borg skali fyrir áreynslu og Borg skali fyrir mæði og eyðublað.
Heimildir
- ATS Statement: Guidelines for the Six-Minute Walk Test: Am J Resp Crit Care Med Vol 166. pp 111-117, 2002
Lykilorð
Þol, þolpróf, ganga
Prófið er aðgengilegt hér:

