SF-36
Lýsing
Spurningalisti um heilsu og vellíðan. Einstaklingar svara sjálfir eða með aðstoð.
Samanstendur af 8 þáttum:
Þættir sem mynda saman líkamlega heilsu ( physical health):
- Líkamleg geta eða virkni (physical functioning)
- Starfshlutverk (role - physical)
- Líkamsverkir (bodily pain)
- Almenn heilsa (general health)
Þættir sem mynda saman andlega heilsu (mental health):
- Hreysti (vitality)
- Félagsleg virkni (social functioning)
- Tilfinningahlutverk (role-emotional)
- Andleg heilsa (mental health)
Niðurstöður
Niðurstöður eru kóðaðar, lagðar saman og breytt í skala frá 0 (versta hugsanlega heilsufar) í 100 (besta hugsanlega heilsufar).
Íslensk þýðing
Magnús Ólasson læknir á Reykjalundi hefur þýtt og bakþýtt spurningalistann en ennþá hefur ekki fengist leyfi til dreifingar hérlendis.
magnuso@reykjalundur.is. Þetta próf hefur m.a. verið notað á Reykjalundi.
Einkaleyfishafar
- The Medical Outcomes Trust (MOT), Health Assessment Lab (HAL) and QualityMetric Incorporated.
- SF-36, leyfi og skráning notenda
- Heimasíða SF-36
Lykilorð
Sjálfsmat, heilsa, lífsgæði

