Titringsskyn
Lýsing
Notað til að meta hvort stöðuskyn er skert en titringsskyn er oft minnkað samfara skertu stöðuskyni.
Haldið er um stofn tónkvíslar og gaflinum slegið við lófa eða læri og látinn titra. Stofninn er þá settur á bein sem liggur grunnt og skjólstæðingur beðin að segja hvað hann finnur.
Markhópur
Einstaklingar með skert stöðuskyn.
Tími
5 mínútur.
Útbúnaður
Tónkvísl 128Hz.
Niðurstöður
Ef titringur finnst á fyrsta framristarbeini er gefin talan 1. Talan 2 ef titringur finnst á miðlægum eða hliðlægum ökkla en 3 ef titringur finnst á sköflungshnjósk (tuberositas tibiae). Einstaklingur sem ekki finnur titring á grunni fyrsta framristarbeins hefur minnkað skyn í fótum og getur átt erfitt með að átta sig á þungadreifingu á il og skynja stöðu og hreyfingar líkamans.
Heimildir
- E.K. Kristinsdottir, Fransson P.A., Magnusson M. (2001). Changes in postural control in healthy elderly subjects are related to vibration, sensation, vision and vestibular asymmetry. Acta Otolaryngol.121(6):700-6.
Lykilorð
Skyn, stöðuskyn, jafnvægi.
Prófið er aðgengilegt hér:

