Afnám tilvísanaskyldu 2026


Upppfært 30. október 2026


Afnám tilvísanaskyldu í sjúkraþjálfun mun taka gildi 1. nóvember næstkomandi.


Hér að neðan má sjá upptöku frá kynningarfundi sem Félag sjúkraþjálfara hélt fyrir félagsfólk 28. september. Glærukynningar frá fundinum eru aðgengilegar þar fyrir neðan.


Neðst má finna spurningar frá félagsfólki um breytingarnar ásamt svörum.

Spurningar og svör

  • 1. Spurning hvort sýnin í Gagna sé þannig að sjá ALLTAF markmiðin hægra megin í glugganum og eins að niðurstöður mælinga séu auðveldlega aðgengileg og jafnvel samanburðarhæf til að auðvelda skýrsluskrif til lækna. 

    Svar:


    Eins og útfærslan er í fyrstu þá eru markmiðin inni í skoðuninni en hægt verður að skrá endurmat á þeim eftir ákveðinn tíma /skipti. Hugmyndin að hafa markmiðin og endurmatið sýnilegt og opið hægra megin er góð hugmynd sem við munum skoða hvort ekki sé skynsamlegt að útfæra. Einnig er eðlilegt að uppfærð markmið meðferðar verði skráð í framgang meðferðar. 


    Hvað varðar spurningalista þá er hægt að opna þá inni í dagnótum / meðferðarskráningu.


    Varðandi skýrslu til læknis þá ætti að vera hægt að kalla fram öll svör við skáðum mælingum frá síðustu skoðun  og þá velja það sem maður vill hafa í skýrslunni 

  • 2. Varðandi markmið og tímalengd markmiða. Er hægt að breyta eða bæta við "markmið meðferðar" þegar líður á meðferð - birtist sú breyting inni í "ástæður meðferðar". Að sama skapi, getum við bætt inn ICD-10 kóðum?

    Svar:


    Sjá svar við fyrstu spurningu og j breytingin skáist í framgang meðferðar. Og já, það er hægt að bæta við ICD kóðum þegar senda þarf inn framhalds eða langtímaumsókn. Það er gert inni í umsókninni sjálfri. 

  • 3. Þegar við færum inn ICD-10 greiningar - fyrir fjórða meðferðarskiptið, opnast þá sjálfkrafa 6 meðferðarskipti til viðbótar við þessi 3 eða þarf samþykkt fyrir? Er það óháð greiningum? 

    Svar:


    Þegar stofnað er nýtt mál þá koma alltaf sjálfkrafa inn 9 meðferðarskipti strax þ.e. ef greining fellur ekki undir flýtileið. 


    Ef ekki er búið að senda inn skilyrtar upplýsingar þegar reikningur fyrir fjórða meðferðarskipti er sendur inn þá fæst hann ekki greiddur. 


    Þá einfaldlega þarf að klára að senda skilyrtar upplýsingar og senda síðan reikninginn. 

  • 4. Varðandi 100% samþykki SÍ - veitir 90 ára aldur sjálfkrafa réttindi til 100% greiðsluþátttöku SÍ í heimasjúkraþjálfun? Ef ekki, þarf að sækja sérstaklega um 100% greiðsluþátttöku til SÍ, þegar einstaklingur nær 90 ára aldri? Þá meina ég auðvitað að færnin er metin með viðeigandi færniprófum, spurningin vísar samt til aldurs, hvort aldur einn og sér hefur áhrif á greiðsluþátttöku SÍ í sjúkraþjálfun?

    Svar:


    Um 100% endurgreiðslu vegna heimasjúkraþjálfunar segir í núgildandi reglugerð um greiðsluþátttöku: Í sérstökum tilvikum, ef um mjög alvarlegt sjúkdómsástand eða mjög alvarlega fötlun er að ræða, er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að samþykkja heimasjúkraþjálfun án greiðslu sjúkratryggðs. 


    90 ára aldurinn veitir því ekki sjálfkrafa rétt.

  • 5. Varðandi viðbótarmeðferð. Ef 9 skipti eru búin og við teljum að viðkomandi þurfi langtímameðferð (ýmsir taugasjúkdómar, vöðvarýrnunar sjúkdómar, starfræn taugaeinkenni, einhverfa, vitrænar skerðingar, fjöleinkennavandi) sem þarf lengri meðferð (hvort sem er á stofu eða í heimasjúkraþjálfun) er þá hægt að sækja um langtímameðferð strax eftir að búið er að setja inn greiningu?

    Svar:


    Já það er hægt að sækja strax um langtímaumsókn þegar búið er að setja greiningu vegna nýs máls. Hins vegar er líklegt að þau tilfelli sem nefnd eru hér að ofan að þá falli viðkomandi undir lagnvarandi veikindi innan flýtileiða og fái þá skilgreind meðferðarskipti miðað við fyrstu innsendu upplýsingar 

  • 6. Í vinnu með einstaklinga með starfræn taugaeinkenni þá hefur það verið eitt lykilatriði í meðferð að taugalæknir hafi sett greininguna (F44.4) og borið hana á borð fyrir sjúklingana. Það hefur sýnt að það hefur vægi á hvernig meðferð sjúkraþjálfara og endurhæfingin í heild sinni gengur. Fólk er gjarnan með efasemdir um að greiningin sé rétt. Taugalæknar hafa sumir veigrað sig við að setja sumar ICD 10 greiningar þar sem þær fylgi einstaklingnum, að sama skapi hafa þeir ekki viljað taka greiningar af. Það verður áhugavert að sjá hvernig þetta hefur áhrif á vinnu með þessa einstaklinga. 

    Svar:


    Ekki er beint verið að biðja um svar hér en í tilfellum sem þessum þá má gera ráð fyrir að samstarf fagaðila sé mikilvægt og sjúkraþjálfarar gætu í tilfellum sem þessum sent rafræna skýrslu til læknis. 


    Sú greining sem við setjum á einstaklinga fara ekki sjálfkrafa inn í Sögukerfið eins og staðan er í dag.

  • 7. Það eru teymi innan Landspítala sem vísa beint í hóptíma, eflaust fleiri fagaðilar. Sumir sjúkraþjálfarar taka því beint inn í sína hóptíma og jafnvel sinna ekki einstaklingsmeðferðum - hvernig eiga þeir sjúkraþjálfarar að hátta þessu skv nýju kerfi? Hvað geta þeir einstaklingar mætt oft?  Þetta á ekki sérstaklega við mig en annan sjúkraþjálfara á minni stofu, en einnig eru læknar sem ég þekki að vísa á hóptíma eða gera tilvísanir ef tímarnir reynast vel. Erfitt að mæla árangur hjá þeim sem hitta aldrei einstaklinga utan hóptíma. 

    Svar:


    Þessu var svarað á fundinum. Oft eru  einstaklingar teknir í einn skoðunartíma til að meta getu og færni áður en viðkomandi fer í hóptíma. Ef það vinnulag er hins vegar ekki fyrir hendi þá verður vinnulagið  bara eins og það er núna. 


    Læknar geta vissulega áfram skrifað tilvísanir til sjúkraþjálfara  ef þeir vilja koma upplýsingum á framfæri en það eru þá bara upplýsingar til sjúkraþjálfara sem ekki eiga  né þurfa að berast Sjúkratryggingum. 


    Eitt skipti í hópþjálfun telur hálft skipti af heimild  - alveg eins og það er í dag.  


    Varðandi árangursmælingar þá er hægt að leggja fyrir spurningalista  í einhverju tilfellum sem krefst ekki bókunar í einstaklingstíma og niðurstöður síðan skráðar í umsókn um viðbótarþjálfun. 


    Ef klíniskar árangursmælingar henta frekar þá er hægt að bóka stutta meðferð eða stutta skoðun og þarf þá viðkomandi sjúkraþjálfari íslíkum tilfellum að breyta sínu vinnulagi.

  • 8. Hafa sjúkraþjálfarar aðgengi að málum sem aðrir sjúkraþjálfarar hefja þegar þeir sækja um fleiri skipti.

    Svar:


    Gagni byggir á því að sjúkraskrá er sameiginleg innan starfstöðva og mál sem skráð eru á stofunni eru sýnileg þeim sjúkraþjálfurum sem þar starfa ef um meðferðarsamband er að ræða milli skjólstæðings og sjúkraþjálfara

  • 9. Þegar við tökum við meðferð einstaklings á sömu eða annarri stofu, getum við vísað í þeirra mál eða skoðun? Þurfum við að endurtaka skoðun? 

    Svar:


    Innan sömu stofu er kannski ekki alltaf þörf á að taka nýja skoðun þar sem viðkomandi sjúkraþjálfari sem er að taka við hefur aðgang að sjúkraskrá verðandi skjólstæðings og er þetta alltaf matsatriði. Hægt er að vísa í málið ef þetta er innan sömu stofu.  


    Ef skjólstæðingurinn er að koma af annarri stofu þá eru líkur á að bóka þurfi viðkomandi í skoðun en það fer þó allt eftir þeim upplýsingum sem hafa farið milli sjúkraþjálfaranna. Ef skoðun er framkvæmd þá er það einfaldlega gert eins og vanalega en etv ekki nýtt mál stofnað þar sem viðkomandi er nú þegar með heimild fyrir x skiptum varðandi þessa greiningu. 

  • 10: Hvaða mælitæki  og spurningalista er gert ráð fyrir að við eigum að notavegna vandamála tengt meðgöngu, fylgikvilla eftir fæðingu, líffæra í grindarholoi (þvagfæra, hægða, kven/karllíffæra, endómetriosu)?

    Svar:


    Í fellivalslistanum er um 80 próf /mælingar og spurningalistar sem notuð hafa verið af sjúkraþjálfurum og mörg hver þeirra verið inni á mælitækjabanka FS. Með tíð og tíma á þessi listi eftir að breytast en það veður engu að síður hægt að handskrá aðrar árangursmælingar sem ekki eru á listanum.

  • 11. Eigum við að nota alla ICD kóða sem eiga við okkar meðferð eða einnig það sem hefur áhrif á hana? Hvað með fyrri greiningar en skipta ekki máli við okkar meðferð og teljum ólíklega hafa áhrif á hana? Við tökum mjög ítarlegt viðtal og skoðun. Vandamál tengt líffærum í grindarholi eru oft fjölþætt.

    Svar:


    Nota þá ICD kóða sem lýsa því vandamáli sem við erum að meðhöndla og hafa áhrif á framgang meðferðarinnar 

  • 12. Þeir sem hafa fengið samþykkt 15 skipti vegna tilvísunar, halda þeir einstaklingar þeim skiptum?

    Svar:


    Já allt sem búið verður að samþykkja fyrir 1.nóv  tekur engum breytingum 

  • 13. Hvenær verður Gagni uppfærður þannig að við getum kynnt okkur þetta? Verður þetta aðgengilegt á gamla Gagna (margir sem nýta sér hann þar sem hann er betri í ýmsu).

    Það verður ekki hægt að skoða þetta eitthvað fyrirfram því virknin tekur gildi 1.nóv og uppfærsla á kerfinu getur því ekki orðið fyrr þar sem um rauntímasamskipti er að ræða. 


    Við gerum ekki ráð fyrir því að uppfæra þetta inn á gamla Gagna því fljótlega mun hann detta út þar sem Nýi Gagni er sífellt að verða betri og betri og að langmestu leyti orðinn betri og fljótvirkari en sá gamli. 


    Hvet ykkur til að fara að nota Nýja og koma þá með ábendingar sem þið verðið vör við svo hægt sé að bæta enn frekar. 

  • 14. Mig langaði að spyrja aðeins varðandi samskipti við aðrar fagstéttir, við getum sent gegnum gagna á heilsugæslustöð en getum við óskað eftir upplýsingum fra t.d. bæklunarlæknum í tengslum við t.d. aðgerði? Ég veit þeir geta sent beiðni en það fylgir samt ekki alltaf og ef við viljum nákvæmari upplýsingar um t.d. hvað var gert i aðgerð og annað eða hvað kom út úr þeirra skoðunum þegar það á við .

    Þetta nýja ferli breytir ekki aðgengi okkar að læknum frá því sem nú er mögulegt en hægt er að skrifa skýrslu í Gagna og senda á lækni og óska eftir upplýsingum. Sú skýrsla flaggast ekki á vinnulista viðkomandi læknis heldur fer inn í sjúkraskrá skjólstæðings og skjólstæðingur þarf þá að láta lækni vita að það séu ný gögn frá sjúkraþjálfara. 


    Læknir hefur þá möguleika á að svara í gegnum tilvísanagáttina og þá kæmi rafræn beiðni með þeim upplýsingum sem verið var að óska eftir sem upplýsingar fyrir  fyrir sjúkraþjálfara  en ekki eiginleg beiðni sem senda þarf inn til SÍ. Ef læknir hefur hins vegar sent rafræna beiðni upphaflega þó í raun sé ekki þörf á henni þá eru komin á samskipti milli læknis og sjúkraþjálfara sem þjónustar skjólstæðinginn. 

  • 15. Er með spurningar varðandi börn/unglinga undir 18 ára. Í dag er það þannig að það kemur kostnaður skjólstæðinginn ef einstaklingurinn kemur ekki með beiðni (s.s. fyrir bráðameðferðir). En ef foreldri kemur með beiðni fyrir barnið að þá er enginn kostnaður. Breytist þetta í nýja fyrirkomulaginu, þ.e.a.s. verður enginn kostnaður á meðferðartímum þeirra óháð því hvort við séum búin að skrá inn þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar áður en fjórði meðferðartími er? Eða þurfum við að setja þessar upplýsingar inn í kerfið strax eftir fyrsta tíma til þess að kostnaðurinn verði enginn hjá þeim?

    Eftir því sem við best vitum þá nær afnám tilvísunarskyldunnar líka til barna og beiðni frá lækni verður því ekki lengur forsenda fyrir 100% greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. 


    Þess ber þó að geta að ný reglugerð hefur ekki ennþá verið birt svo þetta svar hefur þann fyrirvara.