Sérfræðileyfi


Til þess að mega kallast sérfræðingur í sjúkraþjálfun og starfa sem slíkur á Íslandi þarf viðkomandi að hafa lokið meistaranámi eða doktorsnámi frá háskóla sem heilbrigðisyfirvöld viðurkenna eða bjóða upp á sambærilega menntun og hér. Námið þarf að hafa verið að stærstum hluta innan þeirrar sérfreinar eða þess sérsviðs sem sótt erum sérfræðileyfi í og haldleiðsla fengin á því sérsviði. Áður en sótt erum um leyfið þarf viðkomandi að hafa starfað sem sjúkraþjálfari í tvö ár í fullu starfi á viðkomandi sérsviði að loknu sérnámi.


Sérfræðileyfi má veita á eftirfarandi klínískum sérsviðum sjúkraþjálfunar:


  • Barnasjúkraþjálfun
  • Geðsjúkraþjálfun
  • Gjörgæslusjúkraþjálfun
  • Greining og meðferð skoðkerfis "Manual Therapy"
  • Heilsugæsla, heilsueffling og vinnuvernd
  • Hjartasjúkraþjálfun
  • Íþróttasjúkraþjálfun
  • Lungnasjúkraþjálfun
  • Kvensjúkdóma- og fæðingarsjúkraþjálfun
  • Stoðkerfissjúkraþjálfun - bæklun
  • Stoðkerfissjúkraþjálfun - gigt
  • Taugasjúkraþjálfun
  • Öldrunarsjúkraþjálfun


Sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun - Kröfur um þekkingu, færni og hæfni sérfræðinga.


Sérfræðingar í sjúkraþjálfun


Landlæknir gefur starfsleyfaskrá sína út á vefnum. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um öll þau sem hafa fengið sérfræðileyfi.