Fibromyalgia Impact Questionnaire (FIQ)
Lýsing
FIQ er matstæki sem hannað er til að mæla ástand sjúklinga með vefjagigt, sem og framfarir og árangur meðferðar.
Tilgangurinn er að mæla þá þætti í heilsu vefjagigtarsjúklinga sem talið er að vefjagigtin hafi mest áhrif á. FIQ er samsettur af 10 spurningum sem ætlað er að meta líkamlega, andlega, félagslega og almenna líðan. Fyrsta spurningin inniheldur 11 liði sem tengjast líkamlegri færni þar sem hver liður er metinn á fjögurra punkta raðkvarða. Í spurningum 2 og 3 merkja sjúklingar við fjölda daga sem þeim leið vel og fjölda daga sem þeir gátu ekki sinnt sínum störfum (þar með talin heimilisstörf) vegna vefjagigtareinkenna. Í spurningum 4 til 10 eru línulegir 10 punkta kvarðar þar sem sjúklingur metur hversu erfið vinnan var, verki, þreytu, morgunþreytu, stirðleika, kvíða og þunglyndi.
Markhópur
Sjúklingar (konur) með vefjagigt
Tími
5-10 mínútur
Útbúnaður
Spurningalisti
Niðurstöður
Sjúklingar með vefjagigt fá að meðaltali 50 stig en sjúklingar sem eru mjög þjakaðir af sínum einkennum eru venjulega með yfir 70 stig. Eftir því sem stigatalan er hærri, þess meiri færniskerðing. Frekari leiðbeiningar um útreikninga eru í fylgiskjali með listanum.
Heimildir
- Bennett R. (2005) The Fibromyalgia impact questionnaire (FIQ): a review of its development, current version, operating characteristics and uses. Clin Exp Rheumatol; 23 (suppl.39) S154 – 162
Lykilorð
Vefjagigt, gigt, verkir
Prófið er aðgengilegt hér:

