ODI - Oswestry spurningalisti
Lýsing
Spurningalisti til að meta færni og verki hjá sjúklingum með mjóbaksvandamál.
Spurningalisti i 10 hlutum: Verkir, daglegar þarfir (að þvo sér, klæða o.s.frv), lyfta, ganga, sitja, standa, svefn, kynlíf (ef við á) og félagslíf. Sjúklingur merkir við þær fullyrðingar sem hann telur eiga við sig í dag.
Markhópur
Sjúklingar með bakvandamál; langvinn eða bráð.
Tími
5-10 mínútur
Útbúnaður
Spurningalisti
Niðurstöður
Stig fyrir hvern hluta eru skoruð á 6-punkta kvarða, frá 0 (ekki vandamál) til 5 (ekki mögulegt). Stigin úr hverjum hluta eru lögð saman og getur heildarstigagjöfin verið frá 0 (engin færniskerðing) til 50 (mesta færniskerðing).
Útreikningur á stigagjöf er í fylgiskjali með listanum.
0 - 20% - lítil færniskerðing
20 - 40% - meðal færniskerðing
40 - 60% - mikil færniskerðing
60 - 80% - alvarleg fötlun
80 - 100% - rúmliggjandi (eða mikið versnandi einkenni)
Heimildir
- Roland M, Fairbank J. (2000) The Roland-Morris disabilty questionnaire and the Oswestry disability questionnaire. Spine; 25:3115 - 24.
Lykilorð
Verkir, mjóbak, bak
Spurningalistinn er aðgengilegur hér:

