International Physical Ativity Questionnaire (IPAQ) - Alþjóðlegur spurningalisti um hreyfingu
Lýsing
Spurningalisti um virknistig einstaklinga sem gefur möguleika á að bera saman hreyfingu einstaklinga á landsvísu eða á milli landa. Tvær útgáfur eru til, stutta útgáfan er ætluð til þess að meta hreyfingu á landsvísu, en langa útgáfan gefur nákvæmari upplýsingar og er ætluð til rannsókna.
Höfundar:
- Höfundar: Barbara Ainsworth, Adrian Bauman, Hamadi Benaziza, Steven Blair, Michael Booth, Cora Craig, Alana Diamond, W Drygas, Ulf Ekelund, Peter Fentem, Shigeru Inoue, Deborah Jones, Toshihito Katsumura, Ilona Kickbusch, Vicki Lambert, Brian Martin, Victor Matsudo, Willem van Mechelen, Pekka Oja, Rimma Potemkina, Michael Pratt, Michaael Sjöström, James Sallis, Ilkka Vuori, Alexander Woll og Agneta Yngve.
Markhópur
Göngudeild, rannsóknir.
Samfelld stig: mælt með að gefa upp í MET-mín/viku: MET level x mín á hreyfingu x fjöldi á viku.
Útbúnaður
Enginn
Tími
10 mínútur
Niðurstöður
Skiptist í 3 flokka eftir því hversu mikið einstaklingurinn hreyfir sig.
- Lágt virknistig: þeir sem ná ekki á virknistig 2 eða 3 eru talin vera óvirk.
- Meðal virknistig: uppfyllir eitt af eftirfarandi 3 atriðum: 3 dagar eða fleiri með erfiða hreyfingu í amk 20 mín EÐA 5 eða fleiri dagar með meðal erfiða hreyfingu eða ganga í amk 30 mín á dag EÐA 5 eða fleiri dagar með samblanda af göngu, meða erfiða hreyfingu eða erfiða hreyfingu sem gefur amk 600 MET-mín/viku.
- Hátt virknistig: uppfyllir eitt af eftirfarandi 2 atriðum: erfið hreyfing (vigorous-intensity activity) amk 3 daga og samtals amk 1500 MET-mín/viku EÐA 7 eða fleriri dagar með samblanda af göngu, meðal erfiða eða erfiða hreyfingu sem gefur amk 3000 MET-mín/viku.
Lykilorð
Virkni
Er til á íslensku?
Eingöngu langa útgáfan er þýdd á íslensku
Spurningalistann má nálgast hér:
IPAQ (International Physical Activity Questionnaire)

