Functional Mobility Scale (FMS) - Kvarði á hreyfifærni (2. útgáfa)


Lýsing

Kvarðinn sem metur hreyfifærni er hannaður til að flokka færni barna með CP (cerebral palsy)í því að komast um á milli staða, þar sem tekið er tillit til þeirra hjálpartækja sem barnið notar hverju sinni.


Höfundar:

  • Hannað af Hugh Williamson Gait Laboratory, The Royal Children's Hospital, Melbourne, Australia, Part of the Gait CCRE
  • Þýtt af: K.Freyju Skúladóttur og Guðbjörgu Eggertsdóttur www.rch.org.au/gait


Markhópur

KH kvarðann er hægt að nota til að flokka getu barna í að komast um milli staða, skrá breytingar á hreyfingu barnsins yfir ákveðið tímabil og til að skrá breytingar í kjölfar íhlutana, til dæmis bæklunaraðgerða eða aðgerða á taugarótum.


Útbúnaður

Í KH er hreyfifærni metin á þremur mismunandi vegalengdum, 5, 50 og 500 metrum (eða 5, 50 og 500 yarda). Kvarðinn segir til um færni barnsins við að komast um heima hjá sér, í skóla og í umhverfinu. Tekið er tillit til ólíkra hjálpartækja hjá sama barni við mismunandi aðstæður.