SF-36 RAND
Lýsing
Spurningalisti um heilsu og vellíðan. Einstaklingar svara sjálfir eða með aðstoð.
Samanstendur af 8 þáttum:
Þættir sem mynda saman líkamlega heilsu ( physical health):
- Líkamleg geta eða virkni (physical functioning)
- Starfshlutverk (role - physical)
- Líkamsverkir (bodily pain)
- Almenn heilsa (general health)
Þættir sem mynda saman andlega heilsu (mental health):
- Hreysti (vitality)
- Félagsleg virkni (social functioning)
- Tilfinningahlutverk (role-emotional)
- Andleg heilsa (mental health)
Niðurstöður
Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig niðurstöður eru reiknaðar:
https://www.rand.org/health-care/surveys_tools/mos/36-item-short-form/scoring.html
Athugið að ekki er stuðst við sömu reikniaðferð og í SF-36 útgáfu listans
Íslensk þýðing
Þetta er RAND útgáfa af 36-Item Short Form Survey Instrument (SF-36) eða 36-atriða spurningalista um heilsu og vellíðan. RAND útgáfan er opin útgáfa. 36-atriða spurningalisti um heilsu og vellíðan hefur verið þýddur og bakþýddur af Magnúsi Ólasyni og Ingu Hröfnu Jónsdóttur. Magnús gaf góðfúslegt leyfi fyrir því að sú þýðing yrði notuð sem grunnur að íslenskri RAND útgáfu. Listinn var færður á RAND form af Hörpu Söring Ragnarsdóttur sjúkraþjálfara.
Heimildir
- Ware, J.E., Jr., & Sherbourne, C.D. “The MOS 36-Item Short-Form Health Survey (SF-36): I. Conceptual Framework and Item Selection,”. Medical Care, 30:473-483, 1992.
- Hays, R.D., & Shapiro, M.F. “An Overview of Generic Health-Related Quality of Life Measures for HIV Research,” Quality of Life Research. 1:91-97, 1992.
- Steward, A.L., Sherbourne, C., Hayes, R.D., et al. “Summary and Discussion of MOS Measures,” in A.L. Stewart & J.E. Ware (eds.), Measuring Functioning and Well-Being: The Medical Outcome Study Approach (pp. 345-371). Durham, NC: Duke University Press, 1992.
Lykilorð
Sjálfsmat, heilsa, lífsgæði
Spurningalistann má nálgast hér:
SF 36 RAND

