2026 Námskeið
Hálsinn í stóra samhenginu
Kennari: Hólmfríður Berglind Þorsteinsdóttir, sjúkraþjálfari, sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis MT
Aðstoðarkennari í verklegum æfingum: Margrét Helga Hagbarðsdóttir, sjúkraþjálfari
Dagsetning: 21.-22. nóvember 2026
Tímasetning: 8:30-16:30 / 8:30-15:45/17:00
Staðsetning: Verkjalausnir, Víkurhvarfi 1, Kópavogi
Verð:
Fagdeild snemmskráning - 95.000 kr
Fagdeild almennt verð - 105.000 kr
Almennt verð - 130.000 kr
Námskeiðið endar 15:45 seinni daginn en fyrir áhugasama sem hafa nú þegar farið á námskeið um grindarbotninn annars staðar, þá verður í boði að læra æfingar á rófubeinsleiðréttingum milli 16:00-17:00 með því að greiða henni aukalega 10.000 kr. Hafa þarf samband við Hólmfríði um þá greiðslu og verður það betur auglýst þegar nær dregur að og mætingarlisti er staðfestur.
Efni námskeiðs:
Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á greiningu og meðferð á hálsvandamálum, en ekki einungis með staðbundinni hálsskoðun, heldur verður lögð áhersla á að skoða ”stóra samhengið" á þann hátt að skoða hvaða svæði hafa gjarnan mikil áhrif á hálsinn. Það verður m.a. fara í efni sem tengist taugum sem staðsettar eru í hálsinum, bæði hálstaugum og þeim heilataugum / - kjörnum sem eru á þessu svæði. Mikil áhersla verður á praktískt efni og æfingar sem er hagnýtt við klíníska vinnu.
Um kennarann
MENNTUN: B.Sc. gráða frá HÍ árið 1999. Sérfræðigráða í greiningu og meðferð stoðkerfis árið 2009 Masters gráða (Musculoskeletal physiotherapy) frá UQ (The University of Queenslandí) Ástralíu árið 2006. Auk þessa hefur Hólmfríður sótt fjölmörg og fjölbreytt námskeið sem tengjast sjúkraþjálfun bæði beint og óbeint. Eitt af aðal áhugasviðum Hólmfríðar frá upphafi hefur verið hálsinn og gerði hún lokaverkefnið sitt um hálsinn í UQ.
STARFSFERILL
- Frá 2003-2005 starfaði Hólmfríður sem sjúkraþjálfari á Íslandi. Fyrst í Hreyfigreiningu, svo í Sjúkraþjálfuninni í Mjódd. Eftir að hafa lokið meistaranámi í Ástralíu árið 2006 hóf hún aftur störf í Hreyfigreiningu, svo í Atlas endurhæfingu, Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu, Heilsuborg (fagstjóri) og starfar nú hjá Verkjalausnum.
- Auk þess að starfa á sjúkraþjálfunarstofum hefur Hólmfríður samhliða starfað við eftirfarandi: Meðgöngusund, sjúkraþjálfari á Hrafnistu í Reykjavík, kennslu við sjúkraþjálfunarskor HÍ og haldið fyrirlestur fyrir Endurmenntun HÍ, kennslu við Keili (fyrir nema í einkaþjálfun) og á ýmsum námskeiðum, bæði fyrir sjúkraþjálfara og aðra. Hólmfríður hélt sitt fyrsta námskeið í samstarfi við Fræðslunefnd FS árið 2012 og hefur haldið nokkur námskeið síðan, síðast árið 2024.

