Borg kvarði
Lýsing
Kvarði til að meta áreynslu/mæði við álag.
Gunnar Borg hannaði tvo kvarða sem báðir kallast Borg kvarðar, annarsvegar áreynslukvarði 6-20, líka nefndur RPE, hins vegar mæðiskvarði 0-10, líka nefndur CR10
- Borg kvarði fyrir áreynslu.
Kvarði þar sem einstaklingurinn skráir eigin upplifun af álagi við þjálfun á kvarðanum 6 - 20. Talan 6 svarar til hvíldar, en 20 til hámarksáreynslu. Kvarðinn er notaður til að finna rétt þjálfunarstig og til að meta erfiðleika mismunandi æfinga. Fyrirmæli til einstaklingsins geta t.d. verið að halda sig á bilinu 12-14 til að álagið sé hæfilegt.
Ath! Prófið er ekki til formlega þýtt og staðlað á íslensku.
Markhópur
Endurhæfingarsjúklingar bæði inniliggjandi og á göngudeild.
Heimildir
- Borg G. Borg's perceived exertion and pain scales. Champaign, IL: Human Kinetics; 1998,
- Borg GA. Psychophysical bases of perceived exertion. Med Sci Sports Exerc. 1982;14(5):377-81.
Lykilorð
Þol, þolpróf

