Berg jafnvægiskvarði
Lýsing
Berg jafnvægiskvarðinn hentar vel til að meta jafnvægi við athafnir daglegs lífs hjá öldruðum og endurhæfingarsjúklingum.
Prófið samanstendur af 14 atriðum þar sem sjúklingur er beðinn að framkvæma ákveðnar hreyfingar eins og t.d. standa upp úr sitjandi stöðu, standa með augu lokuð og standa á öðrum fæti. Gefin eru stig fyrir hvert atriði frá 0 (getur ekki) til 4 (getur framkvæmt án vandkvæða).
Markhópur
Með prófinu er hægt að fylgjast með jafnvægi einstaklinga á ákveðnu tímabili, meta árangur meðferðar og stunda rannsóknir. Hentar bæði fyrir inniliggjandi sjúklinga og sjúklinga á göngudeild.
Tími
Mismunandi eftir sjúklingi sem verið er að prófa, ca 15-20 mínútur.
Útbúnaður
- Skeiðklukku eða úr með sekúnduvísi.
- Línustiku eða merkingu með 0, 5, 12 og 25 cm.
- Skó eða annan hlut af svipaðri stærð.
- Meðalháan stól með örmum (44-47 cm) og rúm, bekk eða stól án arma í sömu hæð.
- Tröppu eða skemil, 18-20 cm á hæð.
Niðurstöður
Mest er hægt að fá 56 stig, en einstaklingur sem fær minna en 45 stig er talinn í aukinni hættu á að detta.
Heimildir
- Berg K, S. Wood-Dauphinée, JI. Williams: The balance scale:reliability assessment with elderly residents and patients with an acute stroke. Scand J Rehab Med 1995;27:27-36.
- Berg K, S. Wood-Dauphinée, B.Bravo, JI. Williams: The Balance Scale: Responding to clinically meaningful changes. Can. J. Rehabil 10: 35-50,1997
Lykilorð
Jafnvægi, færni
Prófið er aðgengilegt hér:

