Standa/setjast 5x (FTSST) - Five Times Sit to Stand Test


Lýsing

Þetta próf er notað til að kanna getu til flutnings, styrk í fótleggjum og jafnvægisstjórnun. Nýtist við markmiðssetningu og mat á árangri.


Mælt er hvað einstaklingur er lengi að standa 5x upp úr stól og setjast aftur. Miðað er við u.þ.b. 90° beygju í mjöðmum og hnjám. 

Ath! Prófið er ekki til formlega þýtt og staðlað á íslensku.


Markhópur

Veikburða eldri einstaklingar.

Tími

Um 5 mínútur.


Útbúnaður

Stóll, skeiðklukka.


Heimildir

  • Whitney S.L., Wrisley D.M., Marchetti G.F., Gee M.A., Redfern M.S., Furman J.M. (2005). Clinical measurement of sit-to-stand performance in people with balance disorders: validity of data for the Five-Times-Sit-to-Stand Test. Phys Ther.85(10):1034-45.


Lykilorð

Styrkur, jafnvægi, færni.


Prófið er aðgengilegt hér:

Standa/setjast 5x (FTSST)