Gross Motor Function Measure (GMFM)
Lýsing
Prófið er notað til að meta grófhreyfifærni og er skipt í fimm mismunandi grófhreyfihluta.
Það eru til tvær útgáfur af GMFM; upphaflega 88 atriða útgáfan (GMFM-88) og nýrri útgáfa sem er með 66 atriðum (GMFM-66). Prófinu er notað til að meta grófhreyfifærni og er skipt í fimm mismunandi grófhreyfihluta:
- Liggja og velta sér
- Sitja
- Skríða og standa á hnjám
- Standa
- Ganga, hlaupa og hopp
GMFM-66 útgáfan var fengin með Rasch tölfræðigreiningu á GMFM -88 prófinu. Með Rasch greiningunni var raðkvarða prófsins breytt í þrepakvarða sem gerir túlkun niðurstaðna auðveldari. GMFM-66 gefur nákvæmar upplýsingar um hversu erfitt hvert atriði er og hjálpar þar af leiðandi betur við markmiðsetningu.
Höfundar:
- Russell, D., Rosenbaum, P., Avery, L. & Lane, M. http://www.canchild.ca/en/measures/gmfm.asp (Heimasíða kanadískrar rannsóknarstofnunar: CanChild)
- Þýtt á íslensku: Björg Guðjónsdóttir, og Unnur Árnadóttir. Hægt er að nálgast íslensku þýðinguna hjá Björgu
thbjorg@hi.is
Markhópur
GMFM-88 var þróað fyrir börn með CP en sýnt hefur verið fram á notagildi þess fyrir börn með Downs heilkenni. GMFM-66 er aðeins hægt að nota fyrir börn með CP.
Hægt er nota annaðhvort 88 atriða eða 66 atriða útgáfuna til að meta börn með CP. Munurinn felst í fjölda atriða og hvernig gögnin eru greind eftir að prófið hefur verið lagt fyrir.
Útbúnaður
Tæki sem til eru á sjúkraþjálfarastöðvum (dýna, bekkur, leikföng), handbók, prófhefti og tölvuforrit (Gross Motor Ability Estimator eða GMAE) sem nauðsynlegt til að reikna út stig fyrir GMFM-66.
Tími
45–60 mínútur að leggja GMFM-88 fyrir barn. GMFM-66 tekur styttri tíma.
Niðurstöður
Prófið er markbundið (criterion-referenced) þ.e. breytingar (framför eða afturför) á getu barnsins eru metnar með því að bera saman mælingar frá einum tímapunkti til annars. Niðurstaðan er gefin upp í prósentum þar sem 100% svarar til grunnhreyfigetu 5 ára heilbrigðs barns.

